Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Kjördæmi ráðherrans.

Það er allt í lagi að benda á það atriði að Suðvesturkjördæmi er kjördæmi Ögmundar ráðherra VG.

Ráðherra virðist ekki gera athugasemdir við það atriði að læknar vinni ferliverk á ljóshraða, eins sérkennilegt og það nú er.

kv.Guðrún María.


mbl.is Óbreytt starfsemi á St. Jósefsspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna Stykkishólmur ?

Opið bréf til Guðjóns Arnars Krisjánssonar formanns Frjálslynda flokksins.Frjálslyndi flokkurinn átti 10 ára afmæli s.l. haust. Flokkurinn fékk tvo menn á þing fyrir 10 árum og árið 2003 og 2007 fjóra þingmenn kjörna. Samt sem áður er flokkurinn í dag með 1.5% fylgi í könnunum.  Hvernig má það vera spyrja margir? Stefnuskrá flokksins er framsækin fyrir land og þjóð
  • Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um frelsi einstaklingsins, lýðræði og mannréttindi.
  • Frjálslyndi fllokkurinn vill kvótann aftur til þjóðarinnar.
  • Frjálslyndi fllokkurinn vill gera landið að einu kjördæmi.
  • Frjálslyndi flokkurinn vill afnema verðtrygginguna.
  • Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um íslenskan landbúnað.

Það virðist sem forysta fokksins skorti áhuga á að stækka flokkinn, efla innra starf flokksins og hleypa nýju fólki að. Það liggur ljóHvernig bregst forystan við nýju framboðunum? Jú, hún ákveður að flýja til fjalla með þingið. Það þarf ekki flokksmenn til að sjá að hér er verið að hindra endurnýjun á forystu flokksins. Landsþing í Stykkishólmi á kosningaári, þýðir minni aðsókn, og minni athygli. Allt virðist helst miðast við að engin endurnýjun verði og sömu menn haldi um valdataumana í flokknum, hvað sem það kostar. Hvað veldur ? Ósk um póstkosningu meðal flokksmanna um kjör í embætti flokksins fékk dræmar undirtektir en sú ósk var sett fram í ljósi þess að fjöldi félaga í flokknum hafði látið í ljósi andstöðu sína við staðsetningu þingsins.  Hvað veldur Guðjón Arnar að engin í forystunni sér né hlustar á kall flokksmanna um breytingar? Þýðir eitthvað að safna undirskriftum Guðjón Arnar ? Við viljum sjá Frjálslynda flokkinn opinn og lýðræðislegan flokk þar sem hver getur nýtt sinn lýðræðislega rétt sem flokksmaður í stjórnmálaflokki.  Guðjón Arnar, hver er þín sýn á hið nýja Ísland?   

Guðrún María Óskarsdóttir.                      


Hvað ert þú að vilja upp á dekk Jón Baldvin ?

Það hlaut að koma að því að ég og Ingibjörg Sólrún yrðum sammála um eitthvað og það atriði að Jón Baldvin bjóði sig fram sem riddara á hvítum hesti í íslensk stjórnmál, er eins og að horfa á ævintýrið um hin nýju föt keisarans.

Maður sem þáði sendiherrastöðu erlendis í tíð Sjálfstæðis og Framsóknarflokks og tók að hluta til þátt í hinum miklu útrásarævintýrum sem komið hafa þjóðinni á kaldan klaka.

Öfugmælavísurnar gömlu koma einnig upp í hugann.

" Séð hef ég köttinn syngja á bók,

   selinn spinna hör í rokk,

   Skötuna elta skinn í brók,

   Skúminn prjóna smábarnssokk. "

Þinn tími er liðinn, Jón, leyfðu öðrum að komast að.

kv.Guðrún María. 

 

 


mbl.is Jón vill að Ingibjörg víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gísli, Eiríkur, Helgi, hver ber ábyrgðina ?

Stjórnmálamennirnir treystu á embættismennina, og embættismenn á stjórnendur bankanna, bankarnir á stjórnmálamennina sem höfðu áskapað hið mikla frelsi án marka nokkurs konar.

Ótakmarkað frelsi allra handa þar sem engin voru mörkin í eyðimörk frelsisins.

kv.Guðrún María.


mbl.is Skattaskjólin misnotuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð nýjung.

Hverju skrefi í átt að auknu lýðræði ber að fagna, og hér er ein leið til þess.

kv.Guðrún María.


mbl.is Póstkosning framsóknarmanna í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers hafa G-7 fundirnir verið ?

Vita þjóðir heims ekki nú þegar að umbætur fjármálakerfa eru brýnar ?

Varla þurftu menn að hittast í Róm til þess að komast að þeirri niðurstöðu. Hef annars oft velt fyrir mér hverju fundir þessa hóps hafa átt að skila.

kv.Guðrún María.


mbl.is Umbætur á fjármálakerfi brýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best.

Glæsilegt, vona að þetta verði framlag okkar í ár.

kv.Guðrún María.


Sannarlega stórfrétt.

Vonandi er að þetta gangi allt eftir en sennilega hefur heimskreppan eitthvað haft að segja um þessa stefnubreytingu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ódýr lyf handa fátækum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul grein frá ágúst 1998.

Frumkvæði og djörfung í stað stöðnunar

Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:

Stofnun Auðlindasjóðs landsmanna

SJÓÐUR þessi yrði ekki sjóður peninga í eiginlegum skilningi, heldur sjóður atvinnutækifæra landsmanna í formi hins margnefnda "kvóta" í aðalatvinnugreinum þjóðarinnar, landbúnaði og sjávarútvegi, atvinnugreinum er hvor um sig byggist á lífríki jarðar. Eðli málsins samkvæmt er afkoma mannsins því háð skilyrðum þeim er maðurinn hefur skapað, til nýtingar þeirra auðlinda er sá hinn sami hefur yfir að ráða.

Ákveðið hlutfall af veiddum afla úr sjó, t.d. 10% á ári, myndu nytjaaðilar í sjávarútvegi þurfa að greiða til baka í sjóð þennan, í formi aflaheimilda, sem og ákveðið hlutfall af framleiðslu lögbýla, t.d. 10% á ári myndu greiðast til baka í sjóðinn í formi greiðslumarks. Markmið sjóðsins yrði fyrst og fremst að stýra nýtingu auðlinda, með tilliti til umhverfis og landfræðilegra sjónarmiða, með áherslu á fulla þátttöku af Íslands hálfu hvað varðar alþjóðlegar samþykktir og skuldbindingar um verndun umhverfisins. Jafnframt yrði þetta leið út úr þeim ógöngum er núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarstefna hefur leitt okkur í. Úthlutun úr sjóði þessum byggðist síðan á úthlutun aflaheimilda og geiðslumarks, til handa þeim er hygðust snúa sér að lífrænni ræktun landbúnaðarafurða og sjálfbærri nýtingu sjávarafurða í sátt við umhverfið.

Ísland taki frumkvæði þjóða í varðveislu auðlinda

Ísland hefur nú þegar sérstöðu, hvað varðar legu landsins, fiskimiðin og náttúruauðlindir í formi ómengaðra orkugjafa. Þessa sérstöðu eigum við ekki að nota til þess að fá undanþágu til þess að menga meira, eins og virtist uppi á teningnum í Kyoto, heldur eiga frumkvæði að því að hefja á loft umhverfissjónarmið er geta skapað öllu mannkyni betri skilyrði tilvistar á þessari jörð. Hver heilvita maður gerir sér grein fyrir því, að endalaust verður ekki hægt að ganga á auðlindir jarðar án þess að lífríkið umbreytist til hins verra fyrir okkur íbúana. Spyrja má, hve mikið af vorum daglegu þægindum eru lífsnauðsynleg og hve mikill hluti íbúa jarðar hefur enn ekki hugmynd um þessi sömu þægindi. Meðan hluti Íslendinga hefur efni á því að kaupa rándýr lyf, við kvillum öllum, vantar hluta mannskyns lyf við hálsbólgu, sem kann að vera dauðaorsök þeirra hinna sömu þar í landi. Ódýrari og betri lyf eru því forenda þróunar í rétta átt. Þar kann Ísland einnig að taka frumkvæði í framtíðinni. Hræðsla okkar Íslendinga við að skera okkur úr á einhvern hátt, endurvarpar oftar en ekki minnimáttarkennd sem er óþörf hjá þjóð þar sem hver maður kann að lesa og skrifa og hefur þar með möguleika til frekari menntunar. Aukin menntun á hins vegar að skila okkur fleiri hæfileikaríkum einstaklingum, til þess að leysa krefjandi verkefni, í stað þess að skapa þau.

Forsenda þróunar er skynsamleg nýting auðlinda allra

Því miður virðist sem hin almenna mannlega skynsemi fái ekki notið sín sem skyldi lengur, vegna hinna gegndarlausu gróðasjónarmiða, er telja aðeins í stigum hlutabréfa á verðbréfamörkuðum, einnig hér á Íslandi. Lýðræði á góðri leið með að verða mjög afstætt hugtak. Einn gámur af íslenskri fegurð á síðum Playboy, hvað mörg störf í gámum til útlanda? Samkvæmt upplýsingum Fiskifélagsins, hafa tapast 2.000 störf á árunum 1989­ 1995. Það er hverjum manni ljóst að misviturlegar ráðstafanir hafa fært nokkrum mönnum ókeypis aðgang að fiskimiðum landsmanna, með framsali veiðiheimilda í formi kvóta, og samþykkt virðist vera af "framstæðum sjálfssóknarmönnum" en eins og það brask varð til mun það ganga til baka með söfnun veiðiheimilda í Auðlindasjóð landsmanna, er myndi útdeilast jafnt á meðal þegnanna til atvinnu- og verðmætasköpunar. Samtímis munu Íslendingar gefa þjóðum heims fordæmi um sjálfbæra vitræna þróun í stað stöðnunar, með heildaryfirsýn í skipulagi hagsmunamála er varða ekki aðeins Íslendinga heldur allt mannkyn er byggir þessa jörð.

GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR,



 


Máttur kærleikans er mikill.

Jákvætt framtak að safnast saman til þess að sýna kærleikann. 

Í mínu lífi er trú og von samtengd kærleikanum, en kærleikurinn og sannleikurinn eru bræður og systur í lífinu öllu.

" Vinátta er virði gulls á jörð ".

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Senda jákvæða strauma frá Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband