Ég kýs Davíð Oddson til forseta.

Mér til mikillar ánægju kom Davíð Oddsson fram á sjónarsviðið sem frambjóðandi til forseta en að öðrum kosti hefði ég verið í virkilegum vanda varðandi það hvernig ég skyldi verja atkvæði mínu. 

Mig undrar það verulega hversu mikið fylgi Guðni virðist sækja samkvæmt skoðanakönnunum en manninn þekki ég varla neitt hvað varðar nokkurs konar þáttöku á þjóðmálasviði annað en það að hafa hlýtt á hann sem álitsgjafa hjá Ríkisútvarpinu, annað ekki.

Ég vil forseta sem hefur til að bera reynslu af stjórnmálasviðinu , ég tel það farsælt fyrir land og þjóð.

Ég hef aldrei verið flokksbundin í Sjálfstæðisflokknum en ég hefi haft mætur á Davíð Oddssyni gegnum tíðina og kaus hann til borgarstjóra í Reykjavík á sínum tíma. 

Hann ber höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur til forseta þessu sinni að mínu mati.

 

kv. Guðrún María.


mbl.is Hart tekist á í forsetakappræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sammála þér Guðrún María. hann var frábær í þætti eyjunnar í kvöld,það er hægt að sjá myndbandið hjá Gústafi Adolf hér á blogginu. Guðni fékk forskot og var alltaf efstur fyrst því skoðanakannanirnar fóru að telja rétt áður en Davíð komst á skrið. Hann er sá eini sem getur forðað okkur frá ESB og nýjustu frumvarpi að flóttamenn geti farið framá að ættingjar þeirra fái landvistarleyfi án fyrirstöðu.Dæmi er um karl í Danmörku sem býr þar með einni af þrem konum sínum.Nú fer hann fram á að hinar tvær komi og með þeim 12 börn. Allt verður á framfæri Danaþví mússliminn neitar að læra dönsku og að vinna. Mikið af svona löguðu væri til að kaffæra allt þjóðríkið. Mb.Kv. 

Helga Kristjánsdóttir, 30.5.2016 kl. 01:49

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Með þeirri fyrri sem er fyrir í Danmörku,á hann 8,börn ef ég man það rétt.

Helga Kristjánsdóttir, 30.5.2016 kl. 01:51

3 identicon

Sammála, Guðrún María. Ég hefði líka lent í vandræðum og setið jafnvel heima á kosningadag, ef Davíð hefði ekki boðið sig fram, því að ég get ekki hugsað mér að kjósa neinn af hinum frambjóðendunum og get ómögulega séð þá fyrir mér á Bessastöðum. Guðni á best heima, þar sem hann er, í háskólanum. Það er hans staður, auk þess sem ég hef engan áhuga á því að kjósa frambjóðanda, sem Sovétfréttastofa Rúv velur. Allar skoðanakannanir með Guðna efstan eru sérhannaðar fyrir Rúv, enda vitum við allar, að við gætum látið gera fyrir okkur skoðanakönnun um eitthvað þjóðþrifamál og látið niðurstöðuna vera okkur í hag og spurt aðeins þá, sem við vitum, að styðja sjónarmið okkar, svo að ég tek lítið mark á skoðanakönnunum, enda eins og Ingibjörg Sólrún sagði einhvern tíma: Þær eru ekki kosningar. Það verður mest gaman að sjá niðurstöður kosninganna sjálfra, og vona, að Davíð verði þar allra efstur á listanum, því að hann er rétti maðurinn til að leiða þjóðina á þessum viðsjárverðu tímum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.5.2016 kl. 10:33

4 identicon

Einmitt...hann var líka svo góður sem seðlabankastjóri...gerði seðlabankann gjaldþrota...og líka góður þegar hann og Halldór samþykktu fyrir hönd íslands að ráðast inn í Írak....frábær náungi.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 30.5.2016 kl. 12:05

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi virðist "vita" eitthvað sem aðrir vita EKKI. cool wink 

Jóhann Elíasson, 31.5.2016 kl. 08:20

6 identicon

Þetta er á allra vitorði Jóhann...það eru bara meðlimir náhirðarinnar eins og þú sem eruð blindir á gjörðir Davíðs.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 31.5.2016 kl. 08:43

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, þessir "ALLIR", sem þú talar um (þetta er það sama og leikskólakrakkar bera fyrir sig þegar þau vilja leggja áherslu á eitthvað sem þau geta ekki með nokkru móti útskýrt svo vel sé), er eitthvað sem illa upplýstir og fávísir vinstri menn hafa verið að halda fram, en á ekki við nokkur rök að styðjast... cool laughing

Jóhann Elíasson, 31.5.2016 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband