Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Sniðugt framtak.

Mig skal ekki undra að fólk leggi leið sína að sjá þessa sýningu því sannarlega er staðurinn einstakur fyrir akkúrat þetta sjónarspil.

Sjálf hefi ég augum litið fyrirbærið á vefmyndavél Mílu hingað til.

kv.Guðrún María.


mbl.is Magnað sjónarspil við Jökulsárlón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi til handfæraveiða á Suðurnesjum gæti breytt miklu.

Atvinna er forsenda þess að fólk hafi möguleika á því að bjarga sér og min skoðun er sú að gefa eigi mun meira frelsi til handfæraveiða á Íslandsmiðum en núverandi strandveiðikerfi inniheldur, því sjósókn fylgir atvinna í landi við útgerð báta, en menn hafa einnig möguleika á því að veiða sér til matar ásamt því að selja á fiskmarkaði ferska vöru úr matarforðabúri þvi sem Atlandshafið allt í kring um Ísland er og afla sér tekna með einstaklingsframtaki.

Því ber hins vegar að fagna að sviðstjórar fjölskyldu og félagssviðs sveitarfélagsins ræði þessi mál því ótti er ekki ástæðulaus í þessu efni og
orð eru til alls fyrst.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ótti um „týnda kynslóð“ í bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagslegur samdráttur á heimsvísu.

Harðnandi samkeppni og samdráttur á heimsmörkuðum eru án efa eitthvað sem við munum sjá í fréttum sem þessari á komandi tímum.

Viðbrögð fyrirtækja til þess að bregðast við samdrætti munu einnig verða með margvíslegu móti og mismunandi hvernig það hið sama kemur niður í hverju landi fyrir sig.

Að sníða sér stakk efti vexti, hlýtur að vera formúla fyrirtækja til þess að komast af í efnahagslegum samdrætti.

kv.Guðrún María.


mbl.is Farsímadeild flutt frá Svíþjóð til Tókýó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um daginn og veginn.

Það gengur allt upp og niður sitt á hvað og sú litla bakheilsa sem ég hafði gekk úr skorðum fyrir nokkrum dögum, í þriðja skiptið, þrátt fyrir að vita ekki til að hafa gert neitt of mikið nokkurs staðar, sem hefði átt að orsaka það hið sama.

Fékk tíma í sjúkraþjálfun að nýju eftir helgi og reyni að gera allt rétt eins og fyrri daginn í þessu ástandi.

Maður verður hins vegar svo ósjálfbjarga að atriði eins og það að geta snúið sér í rúminu verður stórmál og ég þurfti að leita að snúningslaki sem ég hafði sett á góðan stað, en mundi ekki hvar, en það fannst sem betur fer.

Liggja, ganga, sitja, ganga, liggja, ganga er dagskipulagið þessa dagana.

Annað er ekki í boði.

kv.Guðrún María.


Skrumskæling lýðræðisins í hnotskurn.

Datt einhverjum í hug, sem kaus til stjórnlagaþings að kosningin yrði dæmd ógild, en svo varð, og hvað gerðu sitjandi stjórnvöld ?

Jú þau skipuðu ráð á grundvelli hinnar ógildu kosningar, ráð sem skilaði tillögum sem ekkert var gert með á Alþingi, ekkert annað en það að senda á tillögugerðina algjörlega órædda af þingi til atkvæðagreiðslu hjá þjóðinni.

Svo gerist það að hinir skipuðu ráðsmenn, sem að virðist, telja sig hafa fundið upp hjólið, halda af stað í heilaga krossferð með eigin tillögugerð í þessu efni.

Önnur eins hringleikasápuópera hefur ekki sést lengi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Samtök um nýja stjórnarskrá stofnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisverndin nær ekki langt í framkvæmd.

Þegar svo er komið að minkurinn er farinn að vaða að manninum þá er andvaraleysið algert og skorturinn um vitund fyrir náttúrinn himinhrópandi.

Á sama tíma og gífurlegur kostnaður er lagður í umhverfismat á virkjunum í einhverjum lækjarsprænum hér og þar svo ekki sé minnst á lagningu á rafmagnslínum, virðist minkurinn mega drepa allt fuglalíf á svæðinu og enginn
fattar að það þurfi að halda honum í skefjum.

Hvar er Náttúruverndarstofnum og allir þeir fræðingar sem mögulega geta hér lagt fram eitthvað sem hefur áhrif á stjórnvöld, til þess að verja kostnaði í það að halda meindýrum í skefjum, svo sem refi og minki.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mink fjölgar meðan ekki er borgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru margir fyrrverandi ráðherrar á biðlaunum ?

Ég spyr eins og áður, hvað kosta þessar breytingar ?

Er hér um að ræða pólítiska refskák til þess að halda einingu innan flokka fyrir næstu kosningar, eða hvað ?

kv.Guðrún María.


mbl.is Ráðherrabreytingar lagðar fram um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er þetta með markaðshyggjuþokumóðuna.

Auðvitað er 300 þúsund manna samfélag ekki markaður og því munu markaðslögmál milljónaþjóðfélaga seint eiga við landið.

Skriffinska og regluverkaiðnaðurinn er séríslenskur kapítuli þar sem menn hafa um of talið að nógu mikið af lögum og reglum um alla skapaða hluti muni tryggja hitt og þetta, hér og þar, en svo er ekki þegar það hið sama yfirtoppar kostnað við starfssemi fyrirtækja svo ekki sé minnst á stjórnsýslu hins opinbera á stundum.

Tilvist sjávarútvegsfyrirtækja á hlutabréfamarkaði í " góðærinu " segir meira en mörg orð um það hið sama.

Við þurfum hins vegar alltaf að leika okkur sem greifa Íslendingar með gull og græna skóga til vinstri og hægri handar, og sjáum ekkert nógu gott í eigin garði heldur allt miklu betra hinum megin við hæðina.

Því fyrr því betra sem íslenskur hlutabréfamarkaður tekur mið af íslenskum raunveruleika.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gagnast ekki íslenskum fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnileiki lögreglu skiptir miklu máli í umferðarmenningu.

Mér finnst að lögreglunni hafi tekist vel til með það að ná niður umferðarhraða á stofnæðum borgarinnar með sýnileika á ákveðnum tímum.

Það aka fleiri á löglegum hraða en áður, það er alltént mín tilfinning í umferðinni.

kv.Guðrún María.


mbl.is Aukið umferðareftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það brot á mannréttindum að vera dregin fyrir dóm tvisvar til að dæma nákvæmlega sama gjörning ?

Getur það verið að stjórnsýsla í okkar litla landi sé það ófullkomin að einhver einn einstaklingur megi meðtaka það að vera dreginn fyrir dóm til þess að framkvæma nákvæmlega sama gjörning tvisvar ?

Ef svo er, getur verið að það hið sama kunni að vera brot á mannréttindum sem klaufaskapur viðkomandi aðila hefur orsakað ?

Samningar eru samningar og til þess er undiritun viðkomandi aðila sem og vottun til þess að það hið sama standist lög.

Þegar húsaleigusamningi hefur verið rift og enginn nýr gerður, er ekki hægt að rifta húsaleigusamningi við viðkomandi aðila, fyrir dómi, sem sá hinn sami hefur aldrei undirritað. Eða hvað ?

Geta aðilar kanski bara búið til plögg og lagt inn til dóms ?

Því miður það hefur nú þegar verið reynt í mínu tilviki, og ég kært til innanríkisráðuneytis sem vísað hefur í úrskurðarnefnd um félagsþjónustu og húsnæðismál til úrlausnar.

Ég þarf að mæta í dóm þann 10 september næstkomandi með greinargerð sem ég mun gera mér til varnar í þessu máli, en eðli máls samkvæmt er ég í algerri óvissu um hvað verður og á ekki von á því að nefndin hafi þá klárað sína yfirferð.

Það álag sem því fylgir að búa við þessa óvissu er eitthvað sem aldrei skyldi hafa til þurft að koma sökum þess að viðkomandi aðilum var mögulegt að óska eftir því með einu bréfi að ég færi úr þessari íbúð, þar sem ég gæti ekki greitt niður skuldina ásamt leigugreiðslum mánaðarlega, án tilkomu dómstólameðferðar nokkurs konar og kostnaðar þar að lútandi í viðbót.

Við skulum endilega horfa á mannréttindi erlendis og standa með þeim sem þar eru hugsanlega brotin mannréttindi á, en kanski væri einnig ágætt að kíkja í eigin barm öðru hvoru hér á landi.

kv.Guðrún María.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband