Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Af hverju og hvar hallar á konur ?

Nú hefur Vinstri hreyfingin grænt framboð setið við stjórnvölinn og haft til þess tækifæri að koma sínum skilaboðum gegnum stjórnkerfið í því sambandi, en hefur það gerst ?

Hafa stjórnvöld lækkað skatta fyrir konur á vinnumarkaði til þess að jafna launamun ?

Nei það held ég ekki en markmiðaflóð um kynjastjórnun í stjórnkerfinu minnir mig að sé til staðar einhvers staðar.

Sjálf hefi ég alltaf litið á mig sem jafningja karlmanna í öllu öðru en likamlegum burðum en þó ekki í launum á vinnumarkaði þar sem vinnuveitandinn var hver þar, jú hið opinbera.

kv.Guðrún María.


mbl.is Kvenfrelsi ein af meginstoðum VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landlæknir á ekki að þurfa að standa í stappi við lækna um að virða lög.

Eðlilega á Landlæknir að hafa yfirsýn yfir heilbrigðiskerfið, hvern einasta anga er lýtur að starfssemi sem slíkri, því að öðrum kosti uppfyllir embættið ekki sitt lagalega hlutverk.

Því hinu sama þarf að fylgja eftir á hverjum tíma, og ef það þarf að setja viðurlög við það aðtriði að virða ekki upplýsingaskyldu um framkvæmd læknisverk til Landlæknis, þá þarf að koma því hinu sama inn í lög eða reglugerð.

Í raun og veru eiga þau hin sömu viðurlög að vera missir starfsleyfis að mínu viti.

Það er óviðunandi að sjúklingar geti ekki treyst því að eftirlitsaðili með læknisverkum í landinu fái ekki allar upplýsingar, einkum og sér í lagi ef eitthvað út af ber í meðferð hvers konar.

kv.Guðrún Maria.


mbl.is Viðbrögð lýtalækna vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósið má ekki skína of skært á einn eða neinn, á stundum.

Ég gæti nú trúað því að ein tíu prósent hafi hrunið af þessu framboði við það að hinn geðþekki Sigurður Þ.Ragnarsson yfirgefur sviðið.

Það skiptir alltaf máli að vera þekktur í stjórnmálum, þannig er það með þeim kostum og göllum sem því fylgja.

Hinn mannlegi þáttur svo sem heiðarleiki í samskiptum millum aðila er gegna lykilhlutverki í stjórn flokka, þar sem markmið eru skýr um verkefni hvers eðlis sem eru, minnkar vandamál.

Baktjaldamakk og það atriði að nota ekki fundi til ákvarðana, heldur boðskipti er heljarinnar vandamál að ég tel eins og komið hefur í ljós í þessu sambandi að manni sýnist.

Ég býð Sigurð velkominn í Framsóknarflokkinn.

kv.Guðrún María.


mbl.is Hún á að pakka saman og hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svokallað hrunsuppgjör með Landsdómi, varð að pólítiskum skrípaleik.

Alþingi og þá einkum og sér í lagi núverandi stjórnarmeirihluti var þess ekki umkominn að færa einhvers konar uppgjör um ábyrgð á hruninu hér á landi til handa eigin flokkum við stjórnvölinn, heldur varð atkvæðagreiðslan að pólítiskum skrípaleik sem aftur birtist endurtekið þegar tilraun er gerð til að endurskoða málið og koma því á dagskrá þingsins.

Sitjandi stjórnarmeirihluti kemur í veg fyrir það að " þeirra menn " þurfi að bera einhverja ábyrgð en vill að þáverandi samstarfsflokkur, og þar með einn maður beri ábyrgðina.

Í raun og veru hefði átt að aftengja atkvæði þingmanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í þessu máli, eftir störf nefndar.

kv.Guðrún María.


mbl.is Skömmin fullkomin með sýknudómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er svo undrandi.

Af hverju í ósköpunum taka menn ekki vegakafla þjóðvegi 1, við Svaðbælisá, og hækka hann og endurbyggja brúna yfir ána, með hækkun ?

Þess í stað virðast menn ætla að eyða ræktuðu landi á Önundarhorni og endurbyggja veg og varnargarða þar að lútandi ?

Mér er mjög til efs að sú breyting að færa farveg árinnar hafi mikið um það að segja að ekki þurfi í sífellu áfram að vinna við að grafa frá núverandi brúarstæði á þjóðvegi 1, þar sem brúarstæði er svo lágt.

Væntanlega hefur þessi framkvæmd farið í umhverfismat.

kv.Guðrún María.


mbl.is Svaðbælisá færð til að auka strauminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru stjórnvöld, væru nú þegar búin að grípa inn í svona mál.

Mál þetta er með hreinum ólíkindum og alveg ótrúlegt að ráðherra skuli ekki nú þegar hafa látið til sín taka í málinu, þar sem óvissa um starfhæfi Fjármálaeftirlits í landinu er það sem um er að ræða.

Það er komin rúm vika sem málið hefur dandalast áfram án niðurstöðu.

Þetta heitir ekki stjórnun.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mun kalla menn til ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband