Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Ríkisstjórn landsins þarf að horfast í augu við mistök í máli þessu.

Flótti ríkisstjórnarflokkanna frá þeirri ákvörðun um að kosningar til stjórnlagaþings voru dæmdar ógildar í Hæstarétti, er algjör.

Tilraunir til þess að drepa málinu á dreif og ganga gegn niðurstöðu réttarins varðandi það atriði að skipa ráð, með sömu fulltrúum og fengu kosningu sem dæmd var ógild, er klúður frá upphafi til enda, þvi miður.

Kjörnir þingmenn sverja eið að stjórnarskránni og stjórnarskráin kveður á um gildi laga í landinu, og skiptingu ríkisvaldsins, það er því ekki furða að þingmenn hugsi stöðu sína í þessu sambandi.


kv.Guðrún María.


mbl.is Ófætt stjórnlagaráð klýfur flokkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnumörkun í atvinnumálum er EKKI verkefni Verkalýðshreyfingarinnar í landinu.

Hlutverk verkalýðsfélaga er að semja um kaup og kjör við vinnuveitendur, annað ekki og hin stórfurðulega aðferðafræði að " semja við ríkið " um stefnumörkun í atvinnumálum, er í mínum huga út úr kú.

Launþegar hafa ekki falið sínum verkalýðsfélögu að skipta sér af pólítik í landinu, hvað þá að slíkt finni stoð nokkurs staðar í lagaumhverfi því sem til staðar er um félög þessi.

Að öllum líkindum þarf að fara að senda inn skrifleg erindi til ráðuneytis félagsmála varðandi það hvort launþegum beri að greiða iðgjöld til félaga sem ekki einbeita sér að samningum um kaup og kjör, þ.e, fara út fyrir það hið sama verksvið.

kv.Guðrún Maria.


mbl.is Atvinnumál lykilatriði í kjaraviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál en eigi að síður skortir Umboðsmann sjúklinga á Íslandi.

Það er af hinu góða að efla gæði með hverju móti sem verða má, hins vegar er umfang heilbrigðiskerfisins mikið að vexti og Umboðsmaður sjúklinga hér á landi er löngu tímabær ráðstöfun, einkum og sér í lagi þegar álitamál um gæði koma upp sem eðlilega er hluti af slíku umfangi.

Landlæknisembættið á ekki hvoru tveggja að hafa með höndum að standa skil á gæðum kerfisins og rannsaka álitamál sem slík.

Núverandi forstjóri LSH, fær hins vegar prik frá mér fyrir dugnað í erfiðum aðstæðum þrenginga hér á landi varðandi rekstur háskólasjúkrahúss.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gæði spítalaþjónustunnar efld með verkefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verslanir þurfa að gjöra svo vel að verðmerkja vöruna.

Það er með ólíkindum að öll þessi ár skuli forverðmerkingar hafa verið hér við lýði á matvörumarkaði án þess að Samkeppnisstofnun gerði nokkuð í því hinu sama, fyrr en nú eftir dúk og disk.

Raunin er sú að verslanir verða að gjöra svo vel að verðmerkja hvern einn einasta áleggspakka og pyslur og allt heila galleríið en mér segir svo hugur um að innan tíðar heyrist kvart og kvein um kostnað þar að lútandi.

Það er eigi að síður hvoru tveggja sjálfsagt og eðlilegt að hver verslun verðmerki sína vöru, hver svo sem framleiðandinn er.

kv.Guðrún María.


mbl.is Kvarta undan verðmerkingum á kjötvörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta mál þarftu að ígrunda betur Jón.

Það eru engin tækifæri í breytingum sem kosta meira til framtíðar en í upphafi er farið af stað með og í því sambandi sparar það ekki nokkurn skapaðan hlut að hræra upp í grunnskólum borgarinnar með markmið sparnaðar að leiðarljósi á tímum þegar grunnskóli hverfannna er ein helsta meginstoð barna í mismunandi aðstæðum eftir hrun eins samfélags.

Fyrst skyldi sameina i yfirstjórn Reykjavíkurborgar og koma einni stjórnun yfir skólasvið leik og grunnskóla, annað er út í hött.

Þótt skólar fullnýti ekki aðstöðu sína nú þá breytist það eðli máls samkvæmt eftir árum og hvers konar bullukollaragangur við sameiningu nú kemur bara í bakið á mönnum efir nokkur ár er þarf að stækka, það sjá flestir sem vilja sjá.

kv.Guðrún María.


mbl.is Jón Gnarr: Tækifæri í breytingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarp Ríkisstjórn í Reykjavík ?

Það verður fróðlegt að vita hvaða niðurstöður kunna að koma til sögu eftir þetta þinghald ríkisstjórnarflokkanna ásamt áhugahópi um þjóðarútvarp sem reyndar kemur ekkert fram um hver stendur fyrir.

Eitt umfjöllunarefna er dagskrárstefna núverandi Rikisútvarps, ásamt stöðu og hlutverki þess hins sama, líkt og sitjandi flokkar í ríkisstjórn séu ekki sáttir við hið sama undir eigin stjórn.

Það skyldi þó aldrei vera að mönnum detti í hug að setja á fót " hlutlaust útvarp " til kynningar á sérstökum málum svo sem þjóðaratkvæðagreiðslumálum og Evrópusambandstistandinu.

Kæmi mér ekki á óvart.

kv.Guðrún María.


mbl.is Þinga um þjóðarútvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað á að sameina leikskóla og menntasvið áður en rætt er um sameiningu skóla.

Ég verð að játa það að ég skil vel andstöðu foreldra í Grafarvogi í Reykjavík við framkomnar hugmyndir um meintan sparnað þar á bæ, þar sem að virðist á að sameina skóla sitt á hvað, hér og þar.

Það er réttmæt ábending að vissulega ætti að vera komin til sameining mennta og leikskólasviðs í yfirstjórn Reykjavíkurborgar áður en rætt er um sameiningu skólanna.

Ef svo er að hér sé farið fram með drastískar hugmyndir um kerfisbreytingar, í stærsta sveitarfélagi landsins, sem menn hyggjast síðan draga í land með þegar á líður er þar um að ræða afar heimskulegan pólítiskan sjónleik sem á ekki við á þessu málasviði.

kv.Guðrún María.


mbl.is Foreldrar hafna sameiningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með lögum skal land byggja en ólögum eyða.

Endurskoðun stjórnarskrárinnar verður ekki í sátt eða friði varðandi þær hugmyndir núverandi ríkisstjórnarflokka að skipa bara í ráð þá menn sem kjörnir voru í kosningu sem dæmd var ógild í Hæstarétti.

Hvernig í ósköpunum ætla tillöguhöfundar að verja tilvist skipunar þessara einstaklinga, umfram alla aðra landsmenn ?

Með tilvísan í kosningar sem dæmdar voru ógildar ?

kv.Guðrún María.


mbl.is Mælt fyrir tillögu um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til háborinnar skammar fyrir Vinstri Græna.

Til hvers í ósköpunum var maðurinn að segja af sér sem formaður Landskjörstjórnar ?

Til þess að verða endurkjörinn að nýju, eftir nokkra daga ?

Allt tal stjórnmálaflokksins Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs um betrumbætur í stjórnarháttum er farið fyrir ofan garð og neðan, með þessari fáránlegu tillögugerð um að setja mann sem sagði af sér aftur í embætti í Landskjörstjórn landsins.

Flokkur sem ber slíkt á borð er því miður vart stjórntækur flokkur við stjórn landsins, það ég best fæ séð.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vantraust á hina fulltrúana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með ólíkindum að meirihluti Alþingis hafi samþykkt þennan gjörning.

Það gefur augaleið að óvissuþættir þeir sem fylgja samningsgerðinni um Icesave eru óásættanlegir fyrir land og þjóð að mínu viti, og ótrúlegt til þess að vita að meirihluti Alþingis hafi verið tilbúinn til þess að samþykkja slíkan gjörning.
 

 úrdráttur úr umsögn Fjárlagaskrifstofu.
 
 " Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu gæti skuldbinding ríkissjóðs sveiflast frá því að lækka í allt að 12 milljarða króna og í að hækka í allt að 113 milljarða króna þegar reiknað er með mismunandi forsendum um endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans. 
 
 
Ábendingar Þórs Saari um skattahækkanir eru þarfar.
 
 
 
 
kv.Guðrún María. 

mbl.is Icesave þýðir hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband