Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011
Er þessi sjóður aðeins fyrir Reykvískar konur ?
Þriðjudagur, 8. mars 2011
Það kemur ekki beinlinis fram í þessari frétt hvort sjóður þessi sé einungis fyrir Reykvískar konur en aðkoma borgarinnar að málinu bendir til þess.
Ef svo er, stendur til að stofna slíkan sjóð í öðrum sveitarfélögun með tilstuðlan velferðarráðuneytis ?
kv.Guðrún María.
![]() |
Lánatryggingarsjóður kvenna endurvakinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvernig var fundarboðið frá viðskiptanefnd þingsins ?
Þriðjudagur, 8. mars 2011
Ekki er öll vitleysan eins, heldur aðeins mismunandi. Nú hefur komið í ljós að bankastjórar voru ekki boðaðir sérstaklega, heldur umræða um ársreikning bankanna þar sem nefndarmenn " reiknuðu með því að þeir kæmu ".....
Er ekki hægt að fá staðfest fyrirfram hverjir mæta á slíka fundi og fresta þeim ef viðkomandi aðilar sem nefndin ætlar að ræða við komast ekki ?
Ég hélt svo vera.
kv.Guðrún María.
![]() |
Bankastjórarnir mættu ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Burt með verðtrygginguna.
Þriðjudagur, 8. mars 2011
Helsti bölvaldur íslenskrar efnahagsstjórnar gegnum tíð og tíma er verðtrygging og rússnesk rúlletta verðbólgu allra handa þar sem engin nær yfirsýn yfir vandamálin á hverjum tima, þ.e hvað hver ákvörðun um eitthvað orsakar í efnahagslegu samhengi hlutanna til enda.
Fyrsta verk núverandi stjórnvalda eftir hrunið hefði átt að vera að afnema vísitölutenginguna en auðvitað var það ekki gert.
Við erum mun betur komin með fjármálaumhverfi þar sem vextir ráða för en flókindaferli verðtryggingarvitleysunnar.
kv.Guðrún María.
![]() |
Krónan kallar á breytilega húsnæðisvexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvers vegna ættum við Íslendingar að ganga í Evrópusambandið ?
Þriðjudagur, 8. mars 2011
Hvað vantar okkur Íslendinga sem við ekki höfum, með aðild að Evrópusambandinu ?
Hvað ?
Kanski ódýrar landbúnaðarafurðir, þegar flutingskostnaður yfir hafið er meðferðis ?
Fisk ? Varla.
Vantar okkur kanski stjórnmálamenn, til að breyta þvi fyrir okkur sem við þykjumst ekki sjálf geta breytt ?
Mitt svar er NEI.
Myntsamstarf um evru sem enginn veit hvert stefnir ?
Samstarfið á Evrópska efnahagssvæðinu og innleiðing reglugerða hér á landi þar að lútandi, ætti einungis að vera farvegur til umbóta hér, eða hvað ?
Áhrif okkar á Evrópuþingi ef aðild kæmi til sögu, myndu engu breyta um þær hinar sömu reglugerðir sem nú þegar hafa verið innleiddar, og hvers vegna ættum við að vilja ganga inn í bandalagið ?
Spyr sú sem ekki veit.
kv.Guðrún María.
Vanhugsaður sparnaður borgaryfirvalda í Reykjavík.
Þriðjudagur, 8. mars 2011
Það kemur betur í ljós hve mikil andstaða er við framkomnar hugmyndir borgaryfirvalda um samrekstur og sameiningu skóla í borginni.
Ég get ekki séð að þær hugmyndir að fara að færa til börn úr einu umhverfi í annað með lengri aðkomu sum hver í sína skóla sé ásættanlegt.
Hvert eitt einasta barn ætti að fá að ljúka skólagöngu í þeim skóla sem viðkomandi dvelur í nú, og hvers konar breytingar taki ekki gildi fyrr en við upphaf skólagöngu barna á fyrsta ári.
Hvar er umboðsmaður barna ?
kv.Guðrún María.
![]() |
Foreldrar hafna sameiningartillögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Minnka þarf eftirspurn eftir fíkniefnum og þar með glæpastarfssemi.
Mánudagur, 7. mars 2011
Það er ekki nóg að lögreglan fái forvirkar heimildir til rannsókna, heldur þarf að koma til sögu samtímis stórefling þess að kippa ungum notendum út úr neyslu með viðeigandi úrræðum þar sem kerfið er samhæft til þess arna frá a-ö.
Ég sagði frá A-Ö því það er ekki nóg að senda ungmenni hingað og þangað í opnar meðferðir þar sem gengið er út og inn úr slíkum úrræðum ár eftir ár.
Í fyrsta skipti sem ungmenni innan við 18 ára, útskrifar sig sjálft úr slíku skal og skyldi taka við lokað meðferðarúrræði.
Til þess þarf að verja fjármunum á því stigi máls sem sparast kunna aftur varðandi það atriði að viðkomandi haldi ekki áfram í neyslu sem slíkri og kunni að koma sér upp geðsjúkdómi sem er fylgifiskur þess hins sama og aðeins spurning um tíma i því efni.
Að mínu viti skortir enn á samvinnu um mál þessi millum annars vegar Barnaverndaraðila og heilbrigðisyfirvalda, þar sem tilhneigingin hefur verið að taka á vandamálum þegar í algjört óefni er komið oftar en ekki og lögregla hefur tekið hita og þunga af vandamálunum æ ofan i æ.
Því fyrr sem tekið er á vandamálunum því líklegra er að umfang minnki og því minni eftirspurn sem verður eftir glæpatengdri starfssemi svo sem fíkniefnum í voru samfélagi, því liklegra er að forvirkar rannsóknarheimildir skili tilgangi sínum samhliða.
kv.Guðrún María.
Hinn pólítíski loddaraháttur Vinstri Grænna í Icesavemálinu.
Mánudagur, 7. mars 2011
Það hentar VG, pólítiskt að hafa uppi rangfærslur um það að yfirlýsing fyrri stjórnar hafi skuldbundið þjóðina, og mjög fínt að að fyrrverandi utanríkisráðherra leiðrétti þær hinar sömu rangfærslur.
Það skiptir máli að slíkt sé meðferðis áður en þjóðin gengur að kjörborði um samning númer 3, um mál þetta.
Ef til vill er hér um tilraunir að ræða til þess að hvítþvo hendur af fyrstu samningagerðinni sem borin var í hús, sem verður til ævarandi skammar, veit ekki en það skiptir máli að leiðrétta hinn pólítiska kúrs í umræðu allri, þegar áttavitanum er stungið undir stól.
kv.Guðrún María.
![]() |
Segir þjóðina ekki skuldbundna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Í hvaða þjóðfélagi lifa ungir Vinstri Grænir ?
Mánudagur, 7. mars 2011
Getur það verið að ungir VG hafi hlotið leiðsögn hinna eldri í flokknum um argaþras gegn Birni Bjarnasyni á sínum tíma og séu fastir í því hinu sama án þess að eygja sýn á nauðsyn þess að lögregla fái forvirkar rannsóknarheimildir ?
Hræðslan við njósnastarfssemi birtist einmitt í þessari yfirlýsingu en nákvæmlega ekki neitt um það hvernig UVG vill taka á málum þessum, sem er slæmt.
Sjálf gæti ég svo sem haldið heilan fyrirlestur um það hvað skyldi gera samhliða því að lögregla fái auknar heimildir í þessu efni, og er tilbúin til þess að fræða unga fólkið um það ef svo ber undir, sem lýtur að því að samfélagið taki ákveðna málaflokka fastari tökum hér á landi en verið hefur.
kv.Guðrún María.
![]() |
UVG mótmælir rannsóknarheimildum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um að gera að auka illindi og erjur, allra handa, eða hvað ?
Sunnudagur, 6. mars 2011
Það hefði nú svo sem verið allt í lagi hjá Ruv að sleppa þvi að láta viðkomandi fréttamann fjalla um málefni sem tengdust Jóni á meðan kærumál fyrir dómsstólum eru afgreidd, en það breytir því ekki að Jón gat sagt einfalt nei við viðbrögðum við fréttinni, í stað þess að dreifa dómsmálaplöggum út um allar jarðir í óljósum tilgangi.
Ég trúi því að réttlætið sigri að lokum, hvar sem það liggur.
kv.Guðrún María.
![]() |
Svaraði í öllum fjölmiðlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagspistill.
Sunnudagur, 6. mars 2011
Blessað vorið færist nær og nær, sem betur fer, en amstur daganna verður einhvern veginn auðveldara á alla lund þegar náttúran fer í grænan búning og fuglasinfónía hins íslenska vors, nærir sálina.
Ég held áfram við það að bæta mitt heilsufar og þakka fyrir að komast gegnum hvern vinnudag, en einn daginn er það upp og annan niður eins og vill verða.
Að erfiða og hvíla sig i réttu samræmi er lykillinn en ekki er það alltaf mögulegt og maður þarf að meta og vega hverju sinni, viðbrögð likamans og haga sér í samræmi við það, eftir efnum og aðstæðum.
Rétt einu sinni enn er ákveðin ringulreið í stjórnarfarinu hér á landi, þar sem kosningar um Icesaceklafann eru framundan ásamt stjórnlagaþingsframkvæmd í uppnámi.
Bæði þessi mál hanga því miður að hluta til á sömu spýtunni sem er aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem annar ríkisstjórnarflokkur hefur á stefnuskrá sinni og kom í gegn á þingi, án umhugsunar um tímaskekkju þeirrar ákvörðunar.
Stjórnarfarið hefur því einkennst af ýmsum misvitrum ákvörðunum, að virðist með það að markmiði að koma aðildarumsókninni að Evrópusambandinu áfram, alveg sama hvað það kostar land og þjóð.
Sem betur fer styttist kjörtímabiið.
kv.Guðrún María.