Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Óútfylltur vixill, er lagafrumvarp ríkisstjórnar um Icesave.

Fínt hjá Geir að færa fjármálaráðherra óútfylltan víxil, ekki veitir af að vekja athygli á þeim fordæmislausu aðferðum sem núverandi stjórnvöld rétta þjóðinni sem lög frá Alþingi.

Lög þar sem þjóðinni er boðið að semja um að borga skuldir starfandi einkabanka fyrir hrun, sem einhverra hluta vegna gátu starfað í Holllandi og Bretlandi án þess að það væri stöðvað, uns hrundu.

Icesavefrumvarpið er spurning um þróun gengis hér á landi sem erlendis og innkomu krafna í þrötabú banka, þar sem óvissuatriðin ein og sér eiga ekki heima í lögum frá Alþingi, því fer svo fjarri.

kv.Guðrún María.


mbl.is Geir Ólafs afhendir Steingrími óútfylltan víxil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki að kynna persónuvernd hér á landi af hálfu stjórnvalda ?

Persónuvernd sinnir mikilvægu hlutverki, en er hinum ýmsu aðilum í stjórnsýslunni ljóst hlutverk sitt í því efni ?

Jafnframt má spyrja um það hvort almenningur í landinu fái nægilegar upplýsingar um það hve margar eftirlitsmyndavélar eru til staðar á hínum ýmsu stöðum, sem og um hlutverk þeirra og tilgang ?

Því miður er ég hrædd um hér skorti nokkuð á fræðslu um þessi mál.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mátti ekki framsenda tölvupóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samþykkt Icesavesamningsins og aðild að ESB á sömu spýtunni.

Það kemur í ljós í þessari könnun að þeir sem vilja ganga í Evrópusambandið vilja frekar samþykkja Icesave.

Það hið sama hefur reyndar ekki farið framhjá manni varðandi skilaboð þeirra sem aðhyllast aðild að þessu ríkjabandalagi.

Það er hins vegar afar sérstakt að menn séu tilbúnir til þess að samþykkja samninga sem hér um ræðir með allri þeirri óvissu er slíkt inniheldur, ásamt því að kröfur þessar eru ólögvarðar, til þess eins að virðist, að slíkt sé mögulega aðgöngumiði að bandalaginu.

Það sýnir sig enn og aftur hve ótímabær þessi umsókn var af hálfu sitjandi stjórnar í landinu gagnvart þeim hagsmunum sem þjóðin þarf að verja eftir hrun.

Mín skoðun er sú að íslenska þjóðin muni fella Icesavesamninginn þrátt fyrir umsnúning forystu Sjálfstæðisflokksins í því efni.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mjótt á mununum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjörlega óábyrgt að raska grunnskólastarfi á tímum kreppu.

Hafi Samfylkingin í Reykjavík ekki vitneskju um það atriði hversu óábyrgt það er að raska starfi grunnskóla á þeim tímum samdráttar sem nú eru, og forgangsraða fjármagni með öðru móti, þá eru flest loforð ríkisstjórnar um að verja " velferðina " fyrir bí.

Grunnþjónusta við menntun og heilbrigði hlýtur að vera síðasta atriðið sem menn koma til með að skera niður á þessum tímum.

kv.Guðrún María.


mbl.is Styður sparnaðaraðgerðir borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja samþykkja sömu gömlu spillinguna og undirlægjuháttinn.

Það er nú frekar ótrúverðugt að eiginmaður fyrrum ráðherra í ríkisstjórninni, sé hér einn í hópi lögmanna sem lýsa yfir samþykki Icesaveklafans, sem snýst meðal annars um það atriði hvort landsmenn vilji samþykkja sömu gömlu spillinguna áfram og viðhafa undirlægjuhátt gagnvart sitjandi stjórnvöldum og ónýtu regluverki í Evrópu um fjármálaumhverfið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Lýsa stuðningi við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einu sinni, einu sinni, enn....

Ganga fulltrúar ASÍSA á fund ríkisstjórnar til þess að " ræða " aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum eins stórvitlaust og það nú er.

Að öllum líkindum á síðan að undirrita orð á blaði einvers konar viljayfirlýsingar sem viðkomandi aðilar túlka sem mikilvæg gögn inn í gerð kjarasamninga.

Þessi sjónleikur hefur gengið nógu mörg ár og ágætt er að afleggja, svo fremi menn hyggist hér horfa fram í tímann.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ganga á fund ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers í ósköpunum þurfti að breyta lögum um talningu í Þjóðaratkvæðagreiðslu ?

Hafi ég lesið rétt þá var Alþingi að breyta lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave sem fara á fram þann 9. apríl, núna í kvöld sem leið á þann veg að telja verði öll atkvæði á einum stað á landinu þ.e, hjá Landsyfirskjörstjórn, en ekki í kjördæmum landsins eins og tíðkast hefur í þingkosningum.

Hver er tilgangur með þessum breytingum eiginlega, annar en kostnaður við ferðalög með kjörkassa ?

Þætti mjög fróðlegt að vita það.

kv.Guðrún María.


mbl.is Síðari umræða um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég segi NEI, við óútfylltum tékka á komandi kynslóðir.

Í mínum huga kemur það ekki til greina að gjalda jáyrði mitt gagnvart þessu máli þar sem enginn hefur sannfært mig um það að óvissuatriði þau er felast í samningagerðinni, séu minniháttar þáttur í máli þessu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Kosið utan kjörfundar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atlaga borgaryfirvalda í Reykjavík að skólum borgarinnar.

Mér fyrirmunað að átta mig á því hvernig yfirvöldum í Reykjavík dettur í hug að fara að boða slíkar breytingar sem um er að ræða á tímum sem þessum þar sem aldrei er mikilvægara að festa ríki í umhverfi barna á skólagöngu.

Gera menn sér ekki grein fyrir því hve mikilvægi skólans kann að vera mikið fyrir börnin á tímum sem þessum ?

Hér er um lögbundna grunnþjónustu að ræða og í raun skyldi fjármagn til ólögbundinna verkefna vera uppurið áður en menn ráðast í hugmyndir um meintan sparnað í hinni lögbundnu þjónustu þar að lútandi.

Aldrei skyldu menn láta sér detta í hug að færa börn úr einum skóla í annan án samráðs við foreldra og skólastjórnendur mum mál sem slíkt, og slík aðferðafræði eitthvað sem ég tel að menntamálaráðuneytið ætti að láta sig varða.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mótmæla flutningi bekkja í Hagaskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einstefna Samfylkingar í Evrópusambandið, þýðir óstarfhæfa ríkisstjórn.

Að vissu leyti er það mjög sérstakt að sjá hér fjármálaráðherra koma fram með svar þetta, í ljósi þess sem samráðherra hans í ríkisstjórn viðskiptaráðherrann talar fyrir.

Enn og aftur kemur það í ljós að hluti ríkisstjórnarinnar er á leið í norður, meðan hinn hlutinn er á leið suður, þó undir þeim formerkjum að vera saman á ferðalagi að stjórna landinu.

Þannig hefur það verið í öllum vandræðagangi þessarar stjórnar frá upphafi, því miður.

kv.Guðrún María.


mbl.is Steingrímur vill byggja á krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband