Vilja samþykkja sömu gömlu spillinguna og undirlægjuháttinn.

Það er nú frekar ótrúverðugt að eiginmaður fyrrum ráðherra í ríkisstjórninni, sé hér einn í hópi lögmanna sem lýsa yfir samþykki Icesaveklafans, sem snýst meðal annars um það atriði hvort landsmenn vilji samþykkja sömu gömlu spillinguna áfram og viðhafa undirlægjuhátt gagnvart sitjandi stjórnvöldum og ónýtu regluverki í Evrópu um fjármálaumhverfið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Lýsa stuðningi við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.

Er það ekki makalaust að enginn þessara lögvísu manna lyftir litlaputta til bjargar þjóð sinni, frá klóm þjóðníðinganna og bankaræningjanna á þeirri ögur stundu þegar þjóðin þarfnaðist þeirra mest við að klófesta þá og endurheimta þýfið.

Heldur rís nú upp skari þeirra, og vill að þjóðin segi sig frá heiðarlegum réttarhöldum til að fá úr skorið um sök sína og ófæddra barna sinna.

Svei þessum lítilmennum.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 17.3.2011 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband