Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Lýsi, til að efla forðabúskap líkamans fyrir pestum.
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Lýsið er tiltölulega ódýrt efni sem inniheldur oft margt af því sem okkur vantar úr daglegri fæðu, og þegar hvers konar pestir herja á þá skyldu menn endilega taka inn lýsi og efla þannig viðstöðuþrótt líkamans.
Beint úr flöskunni eða í pilluformi, og það er íslensk framleiðsla.
kv.Guðrún María.
![]() |
Flensan orðin faraldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ER ríkisábyrgð á Icesave brot á EES, samningnum ?
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Það renna á mann tvær grímur við að lesa þetta álit, varðandi það atriði til hvers í ósköpunum yfir höfuð stjórnmálamenn hafi verið að draga heim samning um þessa fjármálagerninga, sem sannarlega skyldu hafa farið að því regluverki sem gilti við hrunið.
Ég fæ ekki annað lesið út úr þessu áliti að sérstök lagasetning um frekari ábyrgð tryggingasjóðsins í formi laga, þýði brot á EES samningnum, og hvað eru menn að gera ?
Var þetta mál sem átti eitthvað erindi inn á Alþingi Íslendinga ?
úr fréttinni. ( feitletrun mín)
"Með álitinu er því enn staðfest að ákvæði Icesave samninganna um jafnræði milli tryggingarsjóða Íslands, Bretlands og Hollands rýra ekki að neinu leyti rétt íslenska tryggingarsjóðsins þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans.
Þá kemur fram í álitinu að ef tryggingarsjóðnum hefði á hinn bóginn með lögum verið veittur sérstakur forgangur umfram aðra kröfuhafa sem ættu sambærilega kröfu, þ.e. kröfu vegna innstæðna, andstætt reglum kröfuréttar og gjaldþrotaréttar hvað kröfuröð og rétthæð krafna varðar, þá væri hætt við að slíkt fæli í sér brot á EES-samningnum," segir á vef ráðuneytisins.
Kemur meðal annars fram í álitinu að það sé skiptastjóri sem sér um að úthluta fjármunum búsins en ef upp kemur ágreiningur þá skuli útkljá hann fyrir íslenskum dómsstólum, samkvæmt íslenskum lögum. "
kv.Guðrún María.
![]() |
Njóta ekki sérstaks forgangs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ætlar Samfylkingin að láta þjóðina borga Matadorleikinn hér á landi ?
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Því miður er það svo að Samfylkingin sem stjórnmálaflokkur hefur ekki myndað sér skoðun á öðru en að ganga í Evrópusambandið og innanlandsmál er eitthvað sem þessi flokkur hefur komið sér hjá að taka afstöðu í kosningar eftir kosningar.
Nægir þar að nefna afstöðu til kvótakerfis sjávarútvegs, eins helsta deilumáls innanlands, og þar sem upphaf Matadorbrasksins lá og liggur, þar sem afstaða í því máli birtist landsmönnum á sínum tíma með sáttaferð þáverandi formanns Ingibjargar Sólrúnar við LÍÚ, meðan flokkurinn var í stjórnarandstöðu.
Sáttaferðin hefur án efa verið með það að markmiði að fá LÍÚ forystuna til þess að undirganga Evrópuáhuga flokksins eingöngu, sem ekki tókst.
Allan þann tíma er flokkurinn var í stjórnarandstöðu var gagnrýni á hið frjálsa markaðskerfi sem nú hefur hrunið til grunna , allsendis ekki að finna heldur þvert á móti dönsuðu flokksmenn stríðsdans gegn Davíð Oddssyni er hann reyndi að setja mörk eignarhalds á fjölmiðla hérlendis.
Inngrip forseta lýðveldis vors í það mál var og er enn óskiljanlegt og nægir í því efni að vitna í skýrslu ÖSE sem leggur til takmörkun á eignarhaldi fjölmiðla í landinu í skýrslu sinni um þingkosningarnar síðustu.
Flokkur sem vex að fylgi fyrir ómálefnaleg sjónarmið líkt og þessi flokkur Samfylking hefur að mínu viti gert, og getur síðan hvorki virt lýðræði hvað varðar ESB málið né heldur eygt sýn á það atriði að huga að þegnum landsins númer eitt áður en annað er á dagskrá, hefur ekki öðlast þann þroska að teljast hæfur til þess að stjórna einu landi.
Að blanda saman aðildarumsókn að Esb, og samningum um fjármál eftir hrunið var eitraður kolteill sem ekki sér fyrir endann á, og veldur hver á heldur.
Mótmæli hins unga bónda Ásmunds Einars Daðasonar á Alþingi gagnvart þróun mála og tillaga hans þess efnis að fresta umsókn að Evrópusambandinu var heilbriigð skynssemi og þor hans og kjarkur til þess að segja frá tilraunum samstarfsflokksins til þess að þvinga fram afstöðu í þessu máli er og verður honum heiður og sómi í stjórnmálum.
kv.Guðrún María.
Þvílík handvömm, sitjandi stjórnvalda.
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Satt best að segja hélt ég að forseti Aþingis ætti að sjá till þess að nefndir væru starfhæfar, en það atriði að fara að kjósa í nefndir eftir stjórnarsetu til þriggja mánaða, er afar sérstakt af hálfu þeirra stjórnvalda er sitja við valdatauma.
Einn maður á þingi eftir í nefnd þessari í þrjá mánuði, þvílíkur klaufaskapur.
kv.Guðrún María.
![]() |
Þingvallanefnd skipuð á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þráinn hefur tapað skopskyninu að virðist.
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Það er athyglisvert að velta því fyrir sér hve auðvelt Þráinn á með að komast í fjölmiðla með flest sem hann lætur frá sér fara en hann greiddi atkvæði með ESB en afstaða hans um Icesave hefur lítt verið viðruð.
Áður en hann settist á þing hafði hann verið pistlaskrifari í Fréttablaðinu og nær fastur gestur Egils Helgasonar í þætti hans í Ríkissjónvarpinu fyrir stofnun Borgarahreyfingarinnar.
kv.Guðrún María.
![]() |
Fyrr frýs í víti en ég skipti um flokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver skipaði Önnu í peningastefnunefnd ?
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Set hér inn upplýsingar um þessa nefndaskipan, sem ég fann.
"
Forsætisráðherra skipar Dr. Anne Sibert og Dr. Gylfa Zoega í peningastefnunefnd Seðlabankans
Forsætisráðherra hefur í dag skipað tvo fulltrúa í peningastefnunefnd samkvæmt nýju ákvæði í lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Þau eru Anne Sibert, Dr. í hagfræði og prófessor við Birkbeck College, University of London og Gylfi Zoega, Dr. í hagfræði og prófessor við Háskóla Íslands. Formaður peningastefnunefndarinnar er Svein Harald Øygard, Seðlabankastjóri og fulltrúar Seðlabanka Íslands í nefndinni eru auk hans Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands "
kv.Guðrún María.
![]() |
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þvílíkt bull, að miðjumoða eitthvað sem endalaust verður deilt um í algjörri andstöðu við þorra manna á Íslandi.
Sunnudagur, 9. ágúst 2009
Geri ráðamenn sér ekki grein fyrir því að hugmyndir ríkisstjórnar þess efnis að láta alla þjóðina taka á sig skuldbindingar einkabankastarfssemi, er atriði sem gengur ekki upp, þá munu þeir hinir sömu uppskera eins og þeir sá í því efni, þvi miður.
Það er deginum ljósara að hvers konar fyrirvarar og miðjumoð sem flokkar geta hugsanlega sætt sig við í nefndum og reynt verður að fá þingið til að samþykkja, þýðir ekki endilega nein endalok þessara samninga, því fer svo fjarri, og þá mun þurfa að kosta aðra samninganefnd af stað í málið þar sem deilur um það byrja hér áður en deilt verður við aðra osfrv......
Þessi orð nefndarformannsins bera vott um virðingarleysi gagnvart eigin þjóð, varðandi það atriði að nokkur skapaður hlutur sé sjálfsagður í því efni að Íslendingar sem þjóð eigi að koma nærri því að greiða fyrir einkabankastarfssemi í Evrópu sem fór á hausinn með regluverki Evrópusambandsins.
úr fréttinni.
" Gríðarlega mikilvægt sé að fá stuðning allra við málið þannig að Hollendingar og Bretar finni að það er einhuga þing á bakvið það, segir Guðbjartur. "
Mér er það óskiljanlegt að Vinstri Hreyfingin Grænt framboð hafi ekki nú þegar gengið fram fyrir skjödu og slitið þessu samstarfi við Samfylkinguna, því sá flokkur hefur yfirtoppað allt offar sem heitið getur undanfarna áratugi af hálfu annarra flokka við stjórnvölinn, hvað varðar lýðræðisleysi sem og vitundarleysi um áherslur aðgerða í einu þjóðfélagi.
kv.Guðrún María.
![]() |
Reynt að ná breiðri samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bankarnir fjármagnaðir af lífeyrissjóðunum ?
Sunnudagur, 9. ágúst 2009
Mér dettur það helst í hug úr því formaður þessarar nefndar lætur þetta í ljós, að enn séu hugsanlega ósagðar fréttir af raunverulegri stöðu lífeyrissjóðanna í landinu.
Löngum hefi ég rætt um lífeyrissjóðina í landinu og það afdalalýðræði sem viðgengst varðandi skipulagsmál og ákvarðanatöku, þar sem hinn almenni sjóðfélagi hefur ekkert að segja um hvernig fjárvörslu fjár sjóða er varið, sjóða sem safna fé með lögboði.
Við fáum að vita eitthvað fyrsta nóvember.
kv.Guðrún María.
![]() |
Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hlustar félagsmálaráðherra Samfylkingarinnar á fólkið í landinu ?
Sunnudagur, 9. ágúst 2009
Eldri borgarar á Suðurlandi hafa skorað á ríkisstjórnina að draga skerðingar þær sem tóku gildi 1.júli til baka, og í raun ætti það að vera fyrsta verk félagsmálaráðherra að ræða þessi mál í ríkisstjórn við fyrsta tækifæri.
hér er hluti úr fréttinni.
"
Kjaranefnd félags eldri borgara á Selfossi telur að þessi fyrirheit hafa brostið, með aðgerðum þeim sem komu til framkvæmda 1. júlí.
Við tökum undir þær kröfur, sem koma fram í grein Grétars Snæs Hjartarsonar í MBL 6. ágúst að ríkisstjórnin dragi þegar í stað til baka þær skerðingar sem urðu á kjörum öryrkja og aldraðra, er tóku gildi 1. júlí s.l. með breytingu á lögum um almannatryggingar.
Við álítum að lífeyrir aldraðra og öryrkja sé sambærilegur taxtalaunum opinberra starfsmanna, en fjármálaráðherra hefur sagt að ekki verði hreyft við þeim. Einnig er það krafa okkar að lífeyrir öryrkja og aldraðra verði hækkaður frá og með 1. júlí til samræmis við hækkanir hjá launþegum ASÍ og BSRB.
Þessi krafa er réttmæt og eðlileg.
kv.Guðrún María.
![]() |
Vilja breytinguna burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bjánaleg vitleysa, sem engu skilar frekar en fyrri daginn.
Laugardagur, 8. ágúst 2009
Meintir umhverfissinnar sem þessi Saving iceland hópur hefur gert sig út fyrir hefur því miður frá upphafi verið á villigötum í sinni mótmælastarfssemi, alveg sama hvar og hvenær sá hinn sami hefur sýnt sig.
Átök kalla á önnur átök og ofbeldi verður aldrei réttlætt, aldrei alveg sama hvar og hvenær slíkt á sér stað.
Um tíma voru VG áður en þeir fóru í stjórn að virtist undirgefnir varðandi slíka mótmælastarfssemi og spurning hvort þetta sé liður í þvi að draga athygli frá öðrum málum í þjóðfélaginu sem þarfnast skoðunar.
kv.Guðrún María.
![]() |
Mótmælendur handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |