Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
Mun stjórnarandstaðan taka þátt í einhverjum ólýðræðislegasta loddaraleik sem um getur ?
Mánudagur, 11. maí 2009
Að setja aðildarumsókn að Evrópusambandinu í þingsályktunartöllögu frá Alþingi er vanvirðing við þjóðina að mínu viti og algjör kosningasvik VG við sína kjósendur.
Nú reynir á Sigmund Davíð, Bjarna og Birgittu, hvort þau hin sömu telja þetta lýðræðislega boðlegan farveg máls er varðar fjöregg þjóðarinnar sjálfstæðið um eigin ákvarðanatöku.
kv.Guðrún María.
![]() |
Ætla að treysta á andstöðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er LÍÚ, komið í landbúnaðinn ?
Mánudagur, 11. maí 2009
Ekki vissi ég að útgerðarmenn væru með mjólkurkýr á sjó, en einu sinni er allt fyrst.
kv.Guðrún María.
![]() |
Ekki hyggindi að slátra mjólkurkúnni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hér talar Samfylkingarmaður, sem mærir nýja ríkisstjórn, launþegar hafa ekki verið spurðir.
Sunnudagur, 10. maí 2009
Á stundum mætti halda að menn héldu að fólk væri fífl, og menn geti bara hoppað af einu prikinu á annað hér á landi, við það að rúlla ákveðnum áherslum flokka yfir allt og alla eins og þeim dettur í hug.
Hér talar fyrrum frambjóðandi til embætta í Samfylkingunni annars rikisstjórnarflokksins og mærir nýja ríkisstjórn, sem trúverðuga án þess þó að plaggið hafi verið borið fyrir þá umbjóðendur sem sá hinn sami starfar fyrir, launþega í landinu.
Því til viðbótar kemur þetta.
" Þá fagna ég því að nú er aðild að Evrópusambandinu loksins komin á dagskrá. ASÍ hefur lagt áherslu á það sem mikilvægan þátt í aðgerðaáætlun, þannig megi ná trúverðugleika inn á okkar fjármálamarkaði og í gegnum það, minnka þrýsting á krónuna, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. "
Hvar og hvenær var þessi afstaða borin til atkvæða meðal launþegafélaganna ?
Samtök atvinnulífsins gáfu út sams konar yfirlýsingar en urðu frá að hverfa þegar könnun var gerð meðal félagsmanna sem ekki voru sammála stjórninni.
Vegir forsjárhyggjunnar eru enn órannsakanlegir.
kv.Guðrún María.
![]() |
Trúverðugt plagg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað er bæjarráð Hornafjarðar að vilja upp á dekk í þessu efni ?
Sunnudagur, 10. maí 2009
Eru þarna sérstakir hagsmunagæsluaðilar óbreyttrar fiskveiðistjórnar ?
Hvernig litur Öræfagrunn út eftir tíma kvótakerfisins hvað varðar kórallla ?
Sú sýn kom fram í fyrstu neðansjávarmyndatökum Hafrannsóknarstofnunar hér við land um árið.
kv.Guðrún María.
![]() |
Bæjarráð Hornafjarðar varar við fyrningarleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég segi NEI, við aðildarviðræður að Evrópusambandi.
Sunnudagur, 10. maí 2009
Mín afstaða er skýr varðandi aðild að ESB, ég segi NEI, takk, vegna þess ég hefi nú þegar kynnt mér næglega hvað það felur í sér að gerast aðili að þessu ríkjabandalagi þjóða í Evrópu.
Ég VEIT að Ísland fær enga sérsamninga frekar en aðrar þjóðir varðandi sjávarútveg og landbúnað, og þar er um að ræða valdaafsal yfirráða yfir auðlindum, okkur í óhag.
Óstjórn þessa ríkjabandalags i fiskveiðimálum er algjör, og stefna þess hefur beðið skipbrot og sökum þess, verður að telja það sérstakt að sambandið skuli hafa viðrað hugmyndir um að taka upp kvótakerfið íslenska, þegar sá stjórnmálaflokkur sem einn hefur það að stefnuskrá að ganga í samband þetta, hyggst breyta því hinu sama kerfi.
Tilraunir þessa ríkjasambands Evrópu þess efnis að útbúa sérstaka stjórnarskrá voru og eru upphafið að endalokum þess í mínum huga, enda því hinu sama verið hafnað af aðildarþjóðum.
Ég segi þvi NEI, og mun fylgja þvi eftir.
kv.Guðrún María.
Hvað hangir hér á spýtunni ?
Sunnudagur, 10. maí 2009
Byggðaráð Skagafjarðar ????
Ekki kemur fram fréttinni hverjir sitja byggðaráðinu ?
Eru það ef til vill núverandi hagsmunaaðilar að óbreyttu kerfi ?
Væri nú mjög fróðlegt ef einhverjir gætu komist að því ?
kv.Guðrún María.
![]() |
Breytingar tryggi betur störf í sjávarúrtvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað skyldi stjórnarsáttmálinn verða langur ?
Sunnudagur, 10. maí 2009
Miðað við það hve langan tíma það hefur tekið að mynda ríkisstjórn, mætti ætla að ýmislegt hafi verið niðurnjörvað í stjórnarsáttmála þann sem flokkarnir tveir hafa komið sér saman um.
Það verður mjög forvitnilegt að vita hvort þessir tveir flokkar muni beita sér varðandi það atriði að koma áfram breytingum í átt að persónukjöri, sem og hvernig sú útfærsla kemur til með að líta út.
Vonandi fáum við að líta augum stjórnarsáttmála sem fyrst.
kv.Guðrún María.
Um daginn og veginn.
Laugardagur, 9. maí 2009
Vorið er tími væntinga og fátt er yndislegra en vor í íslenskri sveit það sem allt lifnar í orðsins fyllstu merkingu, loftið fyllist fuglasöng, ærnar bera lömbum, og jörðin skrýðist grænu skrúði.
Vorið er einnig tími væntinga í fjölmenninu og í mínum skóla fylgi ég ár hvert ungmennum á leið út í lífið sem er sannarlega gjöfult verkefni.
Við þurfum að leita þess góða nú Íslendingar, hampa þvi og hefja á loft og ég trúi því að unga kynslóðin sem er á leið út i lífið hafi lært nóg að þeim mistökum sem gerð hafa verið og takið mið af þeim við það að byggja nýtt Ísland framtíðarinnar.
Við eigum einstakt land sem við getum nýtt okkur til hagsbóta, allt spurning um að feta réttu leiðina að markinu i því efni og vinna þau hin sömu mál í sátt og samlyndi, með þáttöku fólksins í landinu og leikregum lýðræðisins.
kv.Guðrún María.
Snillingur af Guðs náð.
Laugardagur, 9. maí 2009
Sigmund í Vestmannaeyjum er snillingur af Guðs náð, og sennilega einn næmasti stjórnmálarýnandi sögunnar hér á landi.
Það má nefnilega lesa stjórnmálasöguna lifandi með þvi að skoða teikningarnar, ekki hvað síst fannst mér það tær snilld, þegar umræða um góðærið hófst og Davíð fékk sólgleraugu sem hann bar síðan æ eftir það í teikningum hans.
kv.Guðrún María.
![]() |
Sigmundsvefur opnaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkshagsmunirnir á Íslandi.
Föstudagur, 8. maí 2009
Hvernig virkar lýðræðið innan flokkakerfisins íslenska ?
Er það til þess fallið að laða að fólk með áhuga á því að taka þátt í því að hafa áhrif á breytingar í einu samfélagi ?
Eru flokkarnir þess umkomnir að taka mið af samfélagsbreytingum á hverjum tíma eða vilja þeir sjá til þess að engu verði breytt of mikið, með dyggum stuðningi hagsmunaafla þess efnis ?
Geta þeir endurnýjað forystumenn innan sinna raða ?
Til hvers eru miðstjórnir og flokksráð ?
Hvað gera þeir til þess að virkja lýðræðislega þáttöku borgaranna ?
Er sannfæring þingmanna ofar stefnu flokkanna ?
bara nokkrar spurningar.
kv.Guðrún María.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)