Hvað skyldi stjórnarsáttmálinn verða langur ?

Miðað við það hve langan tíma það hefur tekið að mynda ríkisstjórn, mætti ætla að ýmislegt hafi verið niðurnjörvað í stjórnarsáttmála þann sem flokkarnir tveir hafa komið sér saman um.

Það verður mjög forvitnilegt að vita hvort þessir tveir flokkar muni beita sér varðandi það atriði að koma áfram breytingum í átt að persónukjöri, sem og hvernig sú útfærsla kemur til með að líta út.

Vonandi fáum við að líta augum stjórnarsáttmála sem fyrst.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Sæl, hef ekki góða tilfinningu með morgundaginn og útkomu nýs stjórnarsáttmála, held að flokkarnir tveir séu  á góðri leið með að fara með landið til fjandanns!

Guðmundur Júlíusson, 10.5.2009 kl. 00:47

2 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Það averður engin SÁTT hjá þeim, en málamyndanir til að kaupa sér frið og ráðherrastóla.

Svo hækkar bensínið upp úr öllu valdi á morgun (sunnudag) sem verður bara fyrsta aukaskattsálagningin sem þeir setja. Nú byrjar skattar og skattar ofan á allt, matar, lúxusmatar, aukabílaskattar og aukabensínskattar. Svo koma ferðalagaskattar og gjaldekyriskaupaskattar og nefnið það, ef það verður hægt að bæta við skatti einhvers staðar þá verða þeir lagðir á landann.

En fólkið kaus þetta yfir sig svo fólkið á þetta bara skililð.

Guðmundur Jónsson, 10.5.2009 kl. 01:02

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já sælir báðir tveir.

Mér segir svo hugur um að búið sé að geirnegla skattlagningu í stjórnarsáttmálann.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.5.2009 kl. 01:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband