Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Smásaga úr heilbrigðiskerfinu íslenska.

Það er svo sem ekki í frásögur færandi að einhver þurfi að taka lyf við of háum blóðþrýstingi, en það á við um mig, og lyfið sem mér er ávísað heitir Hydramil mite.

Fyrir nákvæmlega viku síðan fór ég í apótek að sækja lyf þetta, en viti menn, kemur þá ekki í ljós að lyfið er EKKI til í landinu.  Ég hváði, satt best að segja því enginn hafði látið mig vita að lyf sem mér væri ávísað af mínum lækni væri ekki til, fyrr en ég rek mig á það í apótekinu.... kl, að ganga sex á föstudegi og ekki hægt að ná í sinn heimilislækni.

Lyfjafræðingurinn í apótekinu var ekkert nema elskulegheitin, en tjáði mér að það sem hægt væri að bjóða upp á væri tvenns konar lyf sem væru innihaldsefni í lyfinu sem þyrfti þó að brjóta í sundur í einingar, miklum mun dýrara, en að öðrum kosti væri ráð að tala við lækni um hvort mögulegt væri að vera án lyfjanna þar til þau kæmu aftur að tveimur vikum liðnum. Blóðþrýstingsmæling hvern dag væri ráðleg.

Næsta dag ræddi ég við læknavaktina þar sem ég fékk ráð þess efnis að reyna að vera án lyfjanna þar til þau kæmu með mælingum á þrýstingi.

Nú um miðja vikuna fór blóðþrýstingurinn að hækka og ég þurfti að fara heim úr vinnu fyrr en ella til þess að leggja mig á fimmtudaginn.

 Fór samt aftur í vinnu í morgun og náði í heimilislækninn sem þá gat tjáð mér að lyf væri komið með sömu efnun, en ég sagði honum að ekki væri um sama lyf að ræða heldur dýrara lyf, sem ég frétti þegar ég fór í mælingu í apótekinu i gær.

Hann ráðlagði mér að taka þetta dýrara lyf, sem myndi virka fyrir mig með sams konar móti. Ég fór í apótekið í kaffitímanum og lét mæla mig og enn hafði ástand versnað, en ég hafði þá læknisráð um að fá þetta lyf sem þar var komið, en þurfti að fara heim úr vinnunni aftur í dag vegna þessa.

Ég ræddi við minn lækni um hvað mér fannst um þetta í morgun.

Í fyrsta lagi , ef ávísuð lyf af hálfu lækna til sjúklinga eru EKKI TIL, þá á lyfjafyrirtækið að hafa samband við lækninn og læknirinn  að hafa samband við sjúklinginn til þess að láta vita af slíku og ráðleggja.

Sjúklingurinn á EKKI að komast að þessu í apótekinu.

Í öðru lagi, eiga heilbrigðisyfirvöld, s.s Lyfjastofnun eða Landlæknir að senda frá sér tilkynningar þegar handhafi lyfsöluleyfis getur ekki uppfyllt samninga um þjónustu er varðar sjúklinga, til lækna ellegar opinberlega ef eitthvað sérstakt verður til þess að ekki er hægt að uppfylla hlutverk sem slíkt.

Sjúklingur/ skattgreiðandi  á EKKI að greiða mismun kostnaðar varðandi það lyf sem honum er ávísað,  ef lyf sem fyrirtækið skaffar í staðinn kostar meira, hvað sem það heitir ellegar hver framleiðir það....... 

( í þessu tilviki gerði ég það, vegna þess að annað gat ógnað minni heilsu )

Í þriðja lagi. Lyfjafyrirtæki eiga að standa við gerða saminga til handa hinu opinbera, en auðvitað geta komið upp óhöpp, en þá á það að lúta tilkynningaskyldu til allra hlutaðeigandi eins og áður sagði.

Það er mjög mikilvægt að við látum ekki bjóða okkur slíka þjónustu, í kerfi sem lúta skal gæðastöðlum um slíkt hér á landi.

Í ljósi þess er þessi mín frásögn sett hér fram.

 

kv.Guðrún María.

 

 

 


Umfang hins opinbera allt of mikið, hjá einni þjóð.

Stjórnvöldum hefur ekki tekist undanfarna áratugi að færa verkefni frá hinu opinbera til einstaklinga landinu svo neinu nemi, en heilbrigðiskerfið sem og menntarkerfið eru dæmi um verkþætti sem gjörsamlega ómögulegt hefur verið breyta nokkrum sköpuðum hlut í þessu efni.

Nú þegar fjármálastarfssemi er aftur komin fangið á hinu opinbera þá hlýtur ríkari skylda að liggja hjá stjórnmálamönnum að færa verkefni hins opinbera í hendur einstaklinga svo fremi sem menn hyggjast byggja upp frjálst samfélag þar sem samkeppni fær þrifist.

Hvers konar tilraunir til þess að bjóða út verkþætti hinnar opinberu þjónustu hafa því miður verið klaufalegar ekki hvað síst vegna þess að nauðsynlegt eftirlit skorti með framkvæmd mála sem og skilyrðum í upphafi.

Gömlu atvinnuvegirnir sjávarútvegur og landbúnaður hafa verið settir undir formúlur rússnesks verksmiðjubúskapar sem eigna átti markaðsfrjálshyggju sem misreiknaði sig.

Samkeppni hins frjálsa markaðar í verslun og viðskiptum varð að einokun vegna skilyrða og eftirlitsleysis stjórnvalda sjálfra í upphafi.

Það verður mjög fróðlegt að vita hvað vinstri stjórn gerir varðandi þróun mála í einu þjóðfélagi.

kv.Guðrún María.

 

 


Hvers vegna vill ESB að Ísland verði aðili að sambandinu ?

Ég hygg að menn ættu að gaumgæfa þessa frétt sem ég fann frá Brussel, sem Heimssýn var með link á, en þar kemur fram að Evrópusambandið hefur viðurkennt að vísindin, hafi ekki haft hugmynd um ástand fiskistofna, ellegar ástæður fyrir hruni þeirra hinna sömu innan sambandsins þar.

"

 

By Geoff Meade in Brussels

Wednesday May 13 2009

Scientists are unaware of the state of nearly two-thirds of Europe's fish stocks, the European Commission admitted yesterday.

Last month, the Commission warned that nothing short of a completely new fisheries management system based on scientific evidence would halt years of dangerously depleted stocks and get the struggling fishing industry back on its feet.

Now the Commission says scientists do not even have the information to assess the exact scale of the crisis the industry is facing.

Fisheries Commissioner Joe Borg blamed inaccurate catch reporting for the situation, but insisted it was not too late to restore the productivity of the seas.

The Commission has routinely blamed fishing fleets for overfishing and governments for failing to enforce catch quota limits agreed annually under the Common Fisheries Policy (CFP).

In April, officials launched a consultation on the CFP's future, insisting the Commission would be seeking the views of the fishermen's leaders and the fishermen themselves as a priority.

Mr Borg said yesterday: "The situation created by overfishing is serious, but multi-annual management plans are working, and some stocks are already showing signs of recovery.

"That means that the long-term approach is the way to go and that good management always comes first. I am committed to a sound approach to fisheries, based on long-term planning, scientific advice and dialogue with the sector and capable of restoring the productivity of our oceans."

The Commission says it is determined to ensure the long-term viability of the Common Fisheries Policy for Europe's fishermen, while adapting the existing fleet -- already reduced in size in previous reforms -- to face the reality of smaller catches.

The CFP was last reformed in 2002 and the Commission admits there has been "slow progress" in stock recovery.

- Geoff Meade in Brussels "

kv.Guðrún María.

 


Já bara að vísa í bug Össur, afar faglegt.

Já og Nei pólítíkin er alveg einstök, en þegar menn taka að sér stjórn landsins þarf ef til vill eitthvað annað að koma til en það að vísa á bug, fram og til baka.

Framsetning þessar tillögu er léleg hrákasmíð, þar sem miðjumoð orðavals sem allir hafa getað samþykkt hefur orðið niðurstaðan.

kv.Guðrún María.


mbl.is Rökstuðninginn skortir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkshagsmunir Samfylkingar að róa fram stefnumáli flokksins.

Það er ekki furða að vanti eitthvað af rökum meðferðis þegar engin gild rök er í raun að finna til þess að ýta þessu máli áfram núna.

Annar stjórnarflokkurinn hefur gert þetta mál að sinni " heilögu kú " sem hann hefur fengið hinn samstarfsflokkinn til að taka þátt i málinu við " kúrekstur " þennan gegnum þingið, einhvern veginn.

kv. Guðrún María.


mbl.is Lítið um rök fyrir umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oh boy, hefst nú vinstri forsjárhyggjan....

Ætli það væri nú ekki nær að fara í það verkefni að skilgreina þjónustu tannlækna undir almenna heilbrigðisþjónustu, áður en farið er í að reyna að forða mönnum frá neyslu með sköttum sem sjaldan hefur reynst vel.

kv.Guðrún María.


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar um aðildarviðræður að Evrópusambandi verði settar samhliða sveitarstjórnakosningum að ári.

Það er mikilvægt að ný ríkisstjórn hefji ekki starf sitt við það að búa til deilur um aðild að Evrópusambandinu, en setji málið í far þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður sem framkvæma má samhlða sveitarstjórnakosningum að ári.

Annað er ábyrgðarleysi við þær aðstæður sem knýja á um að stjórnvöld einbeiti sér að vinna að í þágu þjóðarinnar við þá stöðu sem islenska þjóðarbúið stendur frammi fyrir.

Nú reynir á það atriði hvort vinstri flokkarnir eru þess umkomnir að axla ábyrgð við stjórnvölinn við erfiðar aðstæður án þess að falla í þann pytt að nota og nýta deilumál til þess að draga athygli frá erfiðri ákvarðanatöku ýmiss konar.

kv.Guðrún María.

 


Það er ekki öll vitleysan eins heldur aðeins mismunandi......

Þrátt fyrir það að hafa skráð mig úr flokknum í byrjun apríl, fékk ég samt þessa póstsendingu frá flokknum, og þrátt fyrir það að hafa verið í framboði fyrir önnur stjórnmálasamtök fyrir síðustu kosningar.

Menn ættu að skamma sín og líta í eigin barm, í stað þess að gala og gapa um bruðl og spillingu hjá öllum öðrum en sjálfum sér.

kv.Guðrún María.


mbl.is Frjálslyndi sendi póst á kostnað Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðisþróun er fagnaðarefni.

Ég fagna því að ný ríkisstjórn ætli að koma persónukjöri á fyrir næstu kosningar og vona og vænti þess að talsmenn Lýðræðishreyfingarinnar fái að segja sitt álit varðandi þær hinar sömu breytingar sem stjórnvöld hyggjast koma í framkvæmd.

Stjórnmál snúast fyrst og síðast um traust millum kjósenda og fulltrúa þeirra við stjórnvölinn.

 kv.Guðrún María.


mbl.is Persónukjör á næsta ári?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn með valdaafsal þjóðarinnar á stefnuskrá, verður ekki langlíf við stjórnvölinn.

Það er svo sem ekki skrítið að maður skuli margsinnis hafa lýst eftir stefnu Samfylkingar á þjóðmálum undanfarin ár því þar hefur enga stefnu verið að hafa í mörgum mikilvægum málum, því miður og flokkurinn að virðist með það eitt markmið að þurfa ekki sjálfur að taka ákvarðanir heldur verði þær sóttar til Brussel.

Það hefur nú komið á daginn.

VG, hefur nú orðið uppvís að ótrúlegum loddarahætti varðandi stefnumál fyrir kosningar og sölu sannfæringar fyrir stóla í ríkisstjórn að sjá má, varðandi aðild að Evrópusambandi, dúlluverkefni samstarfsflokksins.

Flokkar þessir hafa sameinast um það sem fyrsta verkefni að setja þjóðina í deilur um Esb, meðan nákvæmlega ekki neitt, hefur verið að gert í því efni að koma gangverki eins þjóðfélags á fæturnar eftir margra ára hagstjórnarmistök og hrun.

Að sjá ekki gegnum það atriði að fresta fyrirtöku þessa deilumáls, í ljósi þess að eygja sýn á annað ofar því hinu sama er og verður ábyrgðarleysi þar sem flokkshagsmunir eru settir ofar öðru líkt og verið hefur reyndin allt of lengi hér á landi öllum hlutaðeigandi til lítils sóma.

kv.Guðrún María.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband