Baráttan við fíkniefnadjöfulinn.

Barátta við heim fíkniefna tekur á sig margar myndir af hálfu aðila er standa að samfélagslegri þjónustu ýmis konar sem og þeirra er standa einstaklingum í þessum fjötrum nærri.

Vandamálin minnka ekki heldur vefja upp á sig eftir því sem tíminn líður.

Númer eitt, tvö og þrjú er hávær fordæming samfélagsins á þeim glæpum sem sala fíkniefna er sem og neysla þeirra. Breytir þar engu hvaða tegund ólöglegra fíkniefna á í hlut.

Ef við viljum í alvöru sporna við þróun þessari þá eyðum við fé í að taka fíkla úr neyslu í meðferð strax, einkum og sér í lagi börn, biðlistar eiga ekki við í þessu sambandi.

Samvinna og samhæfing aðila allra er starfa að málum sem þessum í einu þjóðfélagi hvoru tveggja þarf og verður að vera fyrir hendi, að öðrum kosti er fjármunum sóað sem nýta mætti betur.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sammála þér elsku Gmaría mín.  Ég kannast svo vel við þetta hrikalega málefni.  Minn drengur hefur nú þurft að bíða í tæpa tvo mánuði að komast að á Vogi, tæpur eins og hann er og veikur fyrir.  Nú loks kemst hann inn á mánudaginn.  Það verður að útrýma biðlistum á meðferðarstofnunum, og hafa eina bráðavakt, þar sem hægt er að taka inn fíkla í erfiðleikum, strax, og helst á sú stofnun að vera lokuð, þ.e. fíklar geti ekki labbað sig út, ef þeir koksa á meðferðinni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.12.2007 kl. 09:01

2 Smámynd: Ragnheiður

Þetta vil ég líka kvitta undir, barðist um á sínum tíma með barnungan son sem vildi bara tortíma sér. Hann byrjar 12 ára gamall og sporin með hann voru þung. Það þurfti að bíða og bíða og oft var hann horfinn út í loftið meðan beðið var. Þetta má ekki vera háð biðlistum,alls ekki. Það er um líf og dauða að tefla!

Ragnheiður , 14.12.2007 kl. 12:59

3 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Ég tek heilshugar undir með þér, ég þekki þennan slag af eigin raun með minn son. Það þarf að opna þessa umræðu og taka til hendinni í þessum málum. Einhvernvegin er eins og samfélagið geri sér ekki grein fyrir því að bið í nokkra daga er uppá líf og dauða.

Gangi þér vel.

Kristín Snorradóttir, 14.12.2007 kl. 14:22

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælar allar og takk fyrir ykkar innlegg.

Já umræðuna þarf að opna enn frekar svo mikið er víst.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.12.2007 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband