Lokum álverum og hættum að framleiða rafmagn, lifum á bókvitinu, ekki komumst við á sjó.

Það er kanski ráð að fara að kynna sér grútarlampana og notkun þeirra eða hvað ? Maður þarf náttúrulega að lesa sér til um slíkt í bókum. Vinstri Grænir boða nefnilega "stóriðjustopp" sem væntanlega hefur all afdrifaríkar afleiðingar í för með sér ef raforkufyrirtækin fara á hausinn allt í einu og hluti iðnaðar leggst af. Sjósókn er ekki möguleg til lífsbjargar því enginn venjulegur maður hefur efni á komast að í útgerð sem ekki er handhafi kvóta nú þegar. Ósköp svipað ástand er uppi í landbúnaði nýlíðun nær ómöguleg. Ef til vill hefur VG einhver töfratækifæri í erminni sem enn hafa ekki komið fram í umræðunni ef til vill, en það er ágætt að skoða mögulegar afleiðingar stefnumótunar sem nær einhliða er sett fram á þann veg í formi " stóriðjustopps " .  

kv.gmaria. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú veist væntanlega að stóriðjustopp þýðir ekki að það eigi að loka þeim stóriðjum sem þegar eru komin. Orkufyrirtækin fara ekki á hausinn þar sem að þau eru ekki með neina umframorku sem er óseld. Þau virkja ekki nema að hafa kaupendur. Finnst það nú aum framtíðarsýn ef að fólk heldur að álbræðslur séu það eina sem getur bjargað okkur. Bendi á að það er ekki stór hluti þjóðarinnar sem sér það sem framtíðarstarf að vinna í álveri. Við erum þegar með 2 álver starfandi og eitt sem hefur starfsemi í vor. Þegar fólk er að tala um stóriðju stopp þá eru þau að tala um að það verði ekki fleiri sett af stað nú. Þetta er hugsað til þess að við getum markað okkur stefnu í umhverfismálum, náttúruvernd og hvernig við ætlum að vinna að því að standast það markmið okkar að draga úr útblæstri á gróðushúsaloftegundum um 50 til 70%. Til þess þarf áætlanir. Það gæti líka verið erfitt fyrir börnin okkar og barnabörn að sætta sig við að við séum búin að binda alla okkar orku í álverum þega þau kannski þurfa á þessari orku að halda til annarra þarfa. Það hefur verið bent á marga möguleika eins og tölvugagnageymslur sem nota orku á við stóriðjur og vetnisframleiðslu. Og her veit hvað kemur til á næstu 20 til 40 árum. En það er einmitt samningstími um orkusölu sem gerður er við álverin

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.3.2007 kl. 00:48

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Magnús Helgi.

Að hluta til er umræða um umhverfismál komin út í öfgar og ógöngur á kostnað umræðu um aðra þætti umhverfismála sem eru í mínum huga ofar svo sem lífríki hafsins sem hreinlega er ekki meðferðis sem heitið getur en er þó ef til vill mun ofar hvað varðar forgangsröðun hvers konar við matarforðaframleiðslu mannkyns alls.

VG hefur ekki rætt annamarka núverandi fiskveiðistjórnunar allt kjörtímabilið síðasta mér best vitanlega og hið sama er að segja um Samfylkinguna sem ekki hefur rætt þau mál sem heitið geti heldur , því fagra ísland náði ekki út fyrir landsteina hvað þá 200 mílna lögsöguna.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.3.2007 kl. 01:16

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Bókvitið verður ekki í askana troðið en bóghveiti, það er hinn besti kostur

Ester Sveinbjarnardóttir, 27.3.2007 kl. 05:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband