Ég vil sjá hver stendur að þessari undirskriftasöfnun, áður en ég skrifa undir.

Ég vil sjá hver stendur fyrir undirskriftasöfnun þeirri sem nú er í gangi, áður en ég skrifa undir, einfaldlega vegna þess að mér er ekki sama hverjum ég fel að ganga þar erinda minna.

Mín skoðun er sú að áður en söfnun sem slík fer af stað skuli kynning á því hver stendur fyrir því hinu sama vera til staðar, líkt og venja hefur verið áður í álíka söfnun undirskrifta.

kv.Guðrún María.


mbl.is Undirskriftir gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Í mínum huga er það fyrst og fremst málstaðurinn og ef menn koma af stað undirskriftasöfnun þá er þeim alveg treystandi (að mínu viti) til þess að ljúka málinu og fylgja því svo eftir.  Ég held ég sé ekki að ljóstra upp neinu leyndarmáli með því að upplýsa þig um að það eru samtökin þjóðarheiðursem standa að þessari undirskriftasöfnun en helstu driffjaðrirnar þar eru Loftur Altice Þorsteinsson og Jón Valur Jensson ásamt Guðmundi Ásgeirssyni og fleirum.

Jóhann Elíasson, 13.2.2011 kl. 00:49

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jóhann.

Ég vil fá að vita það fyrirfram og áður en ég skrifa undir hverjir standa að slíku, mér finnst það sjálfsögð kurteisi og í raun stórfurðulegt að fólk skrifi undir út í loftið án þess að vita hver fer með umboð þess.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2011 kl. 00:57

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sæl Guðrún María og aðrir sem þetta lesa.

Á boðuðum blaðamannafundi á mánudaginn mun koma fram listi þeirra sem standa að baki undirskriftasöfnuninni.  Á sama tíma fer undirskriftasöfnunin formlega af stað.  Við bjuggumst ekki við þessari ásókn núna um helgina enda var hún hugsuð sem generalprufa þar sem við fengjum kannski nokkur hundruð undirskriftir og gætum farið yfir mögulegar villur í hugbúnaði.

En að staðreyndum sem hafa þó komið út í fjölmiðlum og á bloggsíðum.

  1. Ég er einn af meðlimum hópsins og var nafngreindur í hádegisfréttum Bylgjunar.  Að vísu er ég kallaður forsvarsmaður undirskriftasöfnunarinnar þegar réttara er að ég tók að mér að senda boð á blaðamannafundinn og því sá eini sem þeir hafa til að ná sambandi við.
  2. Samtök Fullveldissinna eru skráður eigandi lénsins, en það er aðallega vegna þess að samtökin hafa kennitölu og isnic-einkenni og þau buðu hópnum að nýta það þar sem skráning félagasamtaka og úthlutun nýrrar kennitölu tekur nokkra daga og hefði því söfnuninni seinkað sem því næmi.

Hópurinn telur tugi einstaklinga þvert á stjórnmálasamtök og utan þeirra, konur og karlar á öllum aldri.

Ég vona að þetta svari spurningum þínum og lesenda að einhverju leiti, en annað verður að koma í ljós á mánudagsmorgun.  Ef fólk setur þetta atriði fyrir sig ráðlegg ég því að bíða rólegt í þennan eina og hálfa sólarhring þar til allar upplýsingar verða til staðar.

Axel Þór Kolbeinsson, 13.2.2011 kl. 01:10

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hafa farið fram nokkrar undirskriftir þar sem við höfum ekki hugmynd um hverjir eru bakhjarlarnir og hvað verður svo um þær.  Margar skoðanakannanir höfum við séð, þar hringir einhver maður frá "Gallup" og kynnir sig en hann segir EKKI fyrir hvern hann er að gera könnunina, neitar þú þá að svara????

Jóhann Elíasson, 13.2.2011 kl. 01:11

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Axel og takk fyrir þínar upplýsingar en fyrir mig skiptir það máli að vita hver stendur fyrir hverju, áður en ég undirrita eitthvað einhvers staðar.

Jóhann, já ég spyr alltaf um það fyrir hvern könnun sé gerð og fæ ekki að vita og Gallup er hætt að hringja í mig.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2011 kl. 01:14

6 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sjálfsagt Guðrún, og ekkert nema gott um það að segja að þú spyrjir spurninga.  Svarið færðu endanlega á mánudaginn.

Axel Þór Kolbeinsson, 13.2.2011 kl. 01:17

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já gott að vita Axel, en ég tel að ef við spyrjum ekki spurninga þá getum við látið allt fljóta yfir okkur, sama hvað er.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2011 kl. 01:36

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Tek undir með Guðrúnu en ég lét það ekki aftra mér að svara strax og bíð bara  eftir ESB dæminu sem ég vona að komi á eftir.

Valdimar Samúelsson, 13.2.2011 kl. 01:41

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðrúna María: Ég vil byrja á því að hrósa þér fyrir heilbrigða tortryggni.

Eins og Axel útskýrði þá "þjófstörtuðum" við síðunni til að fá reynslu á kerfið áur en þessu verður formlega hleypt af stokkunum  með fréttamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu á mánudagsmorgun. Þar mun koma fram hópur fólks sem stendur að þessu framtaki, fólk sem kemur úr öllum áttum. Sumir okkar eru Fullveldissinnar, aðrir eru í öðrum flokkum, sumir eru í Þjóðarheiðri (samtökum gegn IceSave) og aðrir ekki o.sfrv.. Það er enginn einn aðili sem stendur fyrir þessu heldur erum við öll í samstarfi og allir velkomnir.

Og ef einhver spyr afhverju við "þjófstörtuðum" þá er það einfaldlega vegna þess að við vorum tilbúnir með verkið innan tímaáætlunar. Við ákváðum semsagt að bíða ekki þangað til "eftir helgi" heldur byrja fyrir helgi.

Það er strax betri árangur heldur en hjá ríkisstjórninni!

kjósum.is

Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2011 kl. 07:37

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir þínar upplýsingar í þessu efni Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.2.2011 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband