Til hamingju með sigurlagið.

Ég óska Þórunni Ernu og flytjendum til hamingju með árangurinn, en lagið er mjög gott lag með gleði í farteskinu, og verðug minning manns sem féll frá fyrir aldur fram og lagði lið sitt tónlistarlífinu í landinu.

Blessuð sé minning hans.

Það var annars einkennandi fyrir þetta ár að þar voru öflugir söngvarar eins og Magni, Jóhanna og Jogvan, og fleiri, en lag Halla Reynis var mjög fínt og hefði allt eins getað verið sigurlag, þar sem sömu gleði var að finna og í sigurlaginu.

Óska laginu góðs gengis í keppni þjóðanna.

kv.Guðrún María.


mbl.is „Aftur heim“ sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Tek undir með þér, hjartanlegar hamingjuóskir til allra aðstandenda og flytjenda sigurlagsins.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.2.2011 kl. 08:12

2 identicon

"verðug minning manns sem féll frá fyrir aldur fram"

Þetta er söngvakeppni, ekki minningarathöfn.

Ekkert illa meint en að senda lag í söngvakeppni vegna samúðar og vorkunnar ,,, get ekki séð að það komi okkur langt. Miðað við hvað það kostar að senda lag þarna út með öllu því fólki sem er í kringum þetta, að þá er lágmark að senda það lag sem hefur mestan möguleika á að vinna.

Þetta lag hefur ekki möguleika. Fólk í evrópu sem veit ekkert um Sjonna eða hvað hefur gengið á, kýs bara vegna gæða lagsins, ekki sögunnar bakvið það.

Einar (IP-tala skráð) 13.2.2011 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband