Hvað segir okkur það sem átt hefur sér stað hjá heyrnarlausum ?

Það eru hörmulegar frásagnir sem okkur birtast í fjölmiðlum þessa dagana í kjölfar niðurstöðu könnunar sem Félag heyrnarlausra lét gera um kynferðisofbeldi sem viðkomandi höfðu að virðist hvoru tveggja verið þolendur og gerendur í samfélagi sem var einangrað frá umheiminum sökum fötlunar í formi heyrnarskerðingar og skorti á tjáningu við fólk án fötlunar sem þessarar.

Ég tel að hafi eitthvað vakið upp spurningar um stöðu þess fatlaða þá hljóti nákvæmlega þetta að vera þess valdandi að menn velti hlutunum fyrir sér og það í víðu samhengi.

Það atriði að hvorki hópar fatlaðra með slíka tegund fötlunar kunni nokkurn tímann að þurfa að einangrast úr mannlegu samfélagi , megi nokkurn tímann eiga sér stað í mannlegu samfélagi né heldur aðrir er eiga við fötlun að stríða.

Það atriði að tjá sig um mál sem slík eftir áratugi líkt og fólk sem er heyrnarlaust hefur gert undanfarið er hetjudáð.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

því miður virðist það vera mikið algengara en við kanski viljum viðurkenna að fólk í valdastöðum misnoti sína aðstöðu og það með því að níðast á þeim sem minna mega sín. Mannskepnan er og verður greinilega mesta skepna allra "skepna" .Því miður er það ekki ósjaldan að fatlað fólk lendi í einhverju svona þó svo það kanski komist ekki upp á yfirborðið... því að þetta fólk hefur oft engan málssvara...

Agný, 14.1.2007 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband