Stórþörf umræða um greiningu á ADHD.
Föstudagur, 10. ágúst 2012
Það er þarft að ræða um það atriði hvernig greining á ofvirkni og athyglisbresti er hér á landi, þar sem aðferðir við slíkt geta verið mismunandi eins og Ólafur Guðmundsson á Bugl bendir á.
Það er öllum til hagsbóta að sú hin sama greining sé rétt, einkum og sér í lagi þeim einstakling sem á í hlut.
Mín persónulega reynsla af skólakerfinu sem foreldri var sú að tilhneyging kennara til þess að senda barn í greiningu væri nokkuð rík á fyrstu stigum skólagöngu, en þar er um að ræða mat kennara á heðgun barns í skólaumhverfi.
Síðar kom til sögu mat á því hinu sama áður en unglingastig tók við og barnið greindist ekki ofvirkt eða með athyglisbrest samkvæmt því hinu sama mati á þeim tíma, þannig að varla hefði barn þá greinst ofvirkt á fyrri stigum.
Síðar öðlaðist ég sjálf all mikla reynslu í vinnu í skóla með börnum sem voru greind með þessi vandkvæði þar sem mikilvægi samvinnu og skýrra skilaboða, skiptu öllu máli í þeirri hinni sömu vinnu af hálfu aðila allra.
Vandi skólaumhverfis hér á landi til þess að fá fjármagn til þess að takast á við nægilegan mannafla að störfum með börnum, með þekkingu á því hinu sama, er ekki nýtt vandamál heldur gömul saga og sifelld barátta skólastjórnenda.
Sem dæmi get ég tekið að umbun mín sem skólastarfsmanns fyrir að hafa setið starfsmám um ADHD var eitt þúsund krónur í mínu sveitarfélagi, en sem starfsmaður leikskóla fékk eg ríflegri umbun í formi launa á þeim tíma í öðru sveitarfélagi.
Eigi að síður skiptir það meginmáli að vitneska um misþroska sé fyrir hendi hjá öllum þeim er koma að málum hvers einstaklings, alls staðar.
kv.Guðrún María.
![]() |
Flókið að greina ADHD |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar er atvinnustefna ríkisstjórnarinnar ?
Fimmtudagur, 9. ágúst 2012
Aukin gjaldtaka hins opinbera á að vera forsenda þess að búa til fjárfestingaverkefni á landsbyggðinni, hvaða verkefni ?
Bættar samgöngur eru sjálfsagður og eðlilegur hluti af verkefnum hverrar ríkisstjórnar eftir efnum og aðstæðum hverju sinni,en þær einar og sér duga skammt ef engin er atvinnan.
Ég lýsi hér með eftir atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar.
kv.Guðrún María.
![]() |
Mikill ávinningur til framtíðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um daginn og veginn.
Miðvikudagur, 8. ágúst 2012
Komst austur undir Eyjafjöll í sveitina mína eina nótt, nú síðustu helgi og drakk í mig kyrrðina og fegurðina sem mín heimasveit skartar öllum stundum.
Eyjafjallaökullinn lyfti þokuhattinum smá stund um kvöldið og kom í ljós að sá hinn sami er rytjulegur á að líta með öskuflóka upp eftir hvíta hattinum hér og þar, og skyldi ekki undra eftir hamagang þann sem þar átti sér stað.
Gróður jarðar er mikill í minni sveit líkt og fyrri daginn og óslegin tún, sem ekkert hefur verið borið á af tilbúnum áburði, eins og frumskógur eftir þetta sumar að sjá má og sama hugsun kemur upp hjá mér eins og oft áður, af hverju er ekki hægt að nýta þetta ræktaða land áfram til matvælaframleiðslu hér á landi ?
Vonandi munu ráð mannsins finna leiðir til þess að nýta ræktað land á Íslandi, enn betur, en Eyjafjöllin eru að mínu áliti kjörsvæði lífrænnar ræktunnar í skjóli fjallanna.
Ferðin austur var andleg næring fyrir mig nú eins og stundum áður í ólgusjó lífsbaráttunnar.
kv.Guðrún María.
Varðstaða um sjálfstæði Íslands í komandi framtíð er meginverkefni íslenskra stjórnmála.
Þriðjudagur, 7. ágúst 2012
Ég er andstæðingur þess að við Íslendingar göngum í Evrópusambandið vegna þess að framsal á valdi einnar þjóðar í því magni sem það hið sama inniheldur er eitthvað sem ekki verður aftur tekið, og og öll sjálfstæðisbarátta okkar sem þjóðar fyrir tiltölulega skömmum tíma í minum huga vanvirt af þeim sem vilja slíkt valdaframsal.
Það þarf stjórnmálamenn með bein í nefinu til þess að standa á bremsunni í þessu efni og ég trúi því og treysti að menn standi sína pligt hvað þetta varðar, til handa komandi kynslóðum þessa lands.
Erindrekar sértækra hagsmuna munu áfram dansa á liberalismaballinu, þar aðild að Evrópusambandinu er hljómsveitin sem spilar undir, innan flokka og utan, en ég efa ekki að fleiri munu syngja í brekkusöng sjálfstæðis Íslands um ókomna tíð.
kv.Guðrún María.
Öfgaumhverfisvernd gegn landbúnaði í landinu ?
Mánudagur, 6. ágúst 2012
Til hvers eiga bændur að greiða kostnað við uppgræðslu lands ef þeir hinir sömu mega síðan ekki nýta það hið sama land ?
Það er ekki öll vitleysan eins, heldur aðeins mismunandi.
Hófleg nýting lands er hvoru tveggja sjálfsögð og eðlileg en svo vill til að sauðkindin skilur eftir sig áburð þar sem hún er á beit, fyrir þá sem ekki til þekkja.
kv.Guðrún María.
![]() |
Bændur harðorðir vegna Almenninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ábyrgð stjórnsýslu hins opinbera.
Laugardagur, 4. ágúst 2012
Þegar einn einstakingur í þessu tilviki ég hefur mátt meðtaka það að þurfa að lúta dómi um riftun samnings um íbúðarhúsnæði í upphafi árs 2010, og engan annan samning undirritað um sama mál, þá skýtur það verulega skökku við að opinber stjórnsýsla gangi fram með kröfu um endurtekningu á því hinu sama með ýmis konar málatilbúnaði þar sem viðkomandi höfðu engin frumrit fram að færa fyrir dóm í þvi efni og munu ekki hafa.
Skilningur minn er sá að aðeins einu sinni sé sami löggerningur um sama mál mögulegur fyrir dómi þ.e. riftun samnings til útburðar.
Með öðrum orðum þegar samningi hefur verið rift er það í höndum þess sem hefir rift að óska eftir því að viðkomandi fari úr húsnæðinu þar sem samningur er ekki fyrir hendi.
Munnlegu samkomulag um greiðslu áfallandi leigu án undirritaðs samnings þarf ekki að rifta fyrir dómi.
Forsenda kröfugerðar fyrir dóm og kostnaðaraukningar í máli þessu er vægast sagt á reiki, að mínu áliti og mér kæmi ekki á óvart að þessi málarekstur gagnvart mér af hálfu sveitarfélagsins og lögmanns sem hefur einn með þau hin sömu mál að gera nú um stundir, verði í framtíðinni lærdómur um verulega klaufalega stjórnsýslu.
kv.Guðrún María.
Gleðilega þjóðhátíð Eyjamenn.
Laugardagur, 4. ágúst 2012
Það er og verður alltaf sjarmi yfir þjóðhátíð í Eyjum, og í mínum huga er það brekkusöngurinn sem stendur upp úr á hátíðinni nú sem áður.
Vegna vinsælda þessarrar hátíðar er þar einnig að finna helstu listamenn þjóðarinnar á músiksviðinu hverju sinni.
Veðurguðirnir leika hins vegar stórt hlutverk um hversu ánægjuleg dvöl á þjóðhátíð er í tjaldi, eðli máls samkvæmt.
Heimaklettur býður gesti velkomna hvort sem ferðast sjóleiðina eða með flugi og Herjólfsdalurinn er náttúruleg umgjörð til hátíðahalds með skjóli fyrir norðannæðingi.
Óska Eyjamönnum og þjóðhátíðargestum til hamingju með hátíðina.
kv.Guðrún María.
![]() |
Vel gengur á þjóðhátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Núverandi stjórnarskrá er betri en fyrirliggjandi tillögur um breytingar.
Fimmtudagur, 2. ágúst 2012
Krafan um breytingar á stjórnarskrá landsins er orðin að eins konar pólitískum hráskinnaleik, þar sem breytingar persé eru eins konar aðalatriði, að mér finnst burtséð frá tilgangi þeirra hinna sömu breytinga.
Endurskoðun stjórnarskrár hefur lengi verið á dagskrá Alþingis en eftir hrunið var sú hin sama endurskoðun eitthvað sem menn hengdu hatt sinn á sem sérstakan kapítula til einhvers konar framfara sem mér er ekki sýnilegt með hvaða móti skal verða.
Kosning til stjórnlagaþings sem dæmd var ógild var síðan hundsuð af stjórnvöldum og skipað í ráð samkvæmt þeim sem hlutu flest atkvæði í hinni ógildu kosningu, sem störfuðu og skiluðu tillögum sem að mínu viti eru álika því og stjórnarskráin hafi verið sett í hrærivél og bökuð með auka lyftidufti sem er loðið orðaval allra handa og fagurgali sem aldrei verður til skýrleika um lagasetningu í einu landi.
Alþingi gerði ekkert með málið og nú eiga landsmenn að fá að kjósa um þessa hrærivélahugmyndafræði um nýja stjórnarskrá óbreytta í haust í boði ríkisstjórnarinnar.
Ég víl hafa núverandi stjórnarskrá áfram svo mikið er víst.
kv.Guðrún María.
![]() |
Stjórnarskráin ramminn sem hélt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Yfirdrifinn Evrópumarkaðshyggja, með tvöföldu stjórnkerfi sambandsþjóða.
Miðvikudagur, 1. ágúst 2012
Hvað kostar báknið í Brussel ?
Kostar það kanski ekki neitt að hafa tvöfalt stjórnkerfi um mál öll frá því smæsta upp í það stærsta ?
Ég sagði það fyrir um það bil áratug að hugmyndir Evrópusambandsins að gerð stjórnarskrár myndu þýða það að sambandið liði undir lok, en þær hinar sömu hugmyndir fannst mér afskaplega ríkt dæmi um valdaoffar hvers konar sem myndi snúast i öndverðu sína.
kv.Guðrún Maria.
![]() |
Atvinnuleysi aldrei meira í evrulöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Getur ekki snúist um " íslenskan framkvæmdastjóra " ....
Miðvikudagur, 1. ágúst 2012
Afskaplega eru þetta nú sérkennileg vinnubrögð varðandi það atriði að veita undanþágu þar sem svo virðist vera að forsendan sé sú að framkvæmdastjóri félagsins sé ´" íslenskur " sem aftur vekur upp spurningar um þjóðerni framkvæmdastjóra geti undir einhverjum kringumstæðum skipt máli í þessu sambandi.
Í mínum huga snýst þetta mál um það atriði hversu mikið magn af landi erum við tilbúin að selja í einu lagi til erlendra fjárfesta, punktur.
Helminginn af landinu, einn þriðja eða hvað ?
Afskaplega lítil umræða hefur farið fram á stjórnmálasviðinu um þessi mál fyrr en þetta mál kom til sögu, og stefnumótun því eftir því.
kv.Guðrún María.
![]() |
Minnisblaðið sem talað er um |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |