Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2015
Vor í augsýn.
Laugardagur, 18. apríl 2015
Mikiđ lifandis skelfingar ósköp er mađur nú fegin ađ fá ögn hlýrra veđurfar eftir óvenju leiđinlegan vetur hér sunnanlands.
Endalaust snjóbras og illviđri hefur einkennt ţennan vetur, en ég er sennilega heppin ađ hafa komist klakklaust einu sinni í viku í höfuđborgina allan veturinn og ekki lent í lokunarveseni á heiđinni nema einu sinni fyrir stuttu síđan, í strćtósamgöngum.
Ađ komast út ađ ganga án fimbulkulda ellegar illveđra er afar ánćgjulegt sem og ađ horfa á jörđina lifna viđ og ć fleiri fugla fylla sinfóníuhljómsveit vorfuglanna hér viđ land.
Ég fagna vori og sumri.
kv.Guđrún María.
Um daginn og veginn.
Miđvikudagur, 1. apríl 2015
Hef ekki veriđ mikiđ í pólítiskum vangaveltum nokkuđ lengi , en... fékk einhvern pirring í mín bein er ég heyrđi " vćl " um fyrirhugađa gjaldtöku á makríl í frumvarpi til laga.
Raunin er sú ađ aldrei verđur sátt um eitt eđa neitt sem heitir breytingar í sjávarútvegi hér á landi en ađ sjálfsögđu skyldi ţessi atvinnugrein greiđa sanngjarnt gjald til samfélagsins líkt og önnur atvinnustarfssemi.
Ţađ ER stjórnvalda á hverjum tíma ađ ákveđa slíkt.
Kerfiđ sjálft er hins vegar ţannig úr garđi gert nú orđiđ ađ í raun er varla hćgt ađ tala um ađ stórútgerđir og smábátasjómenn geti falliđ undir sömu lögmál skipulagsins og langt síđan ađ kerfi ţessu hefđi ţurft ađ skipta í tvennt.
Annađ mál úr pólítikinni sem fréttir voru af í dag, pirrađi mig líka.
Húsnćđisfrumvörp félagsmálaráđherra sem sannarlega eru eitthvađ til ţess ađ binda vonir viđ ađ greiđi úr gífurlegum vanda fólks á leigumarkađi og komin eru fram, hefđu dagađ uppi í fjármálaráđuneyti vegna kostnađarmats.
Er ţađ svo ađ ţarna skilji virkilega á milli flokkanna tveggja í ríkisstjórn varđandi félagslegar áherslur í einu samfélagi ?
Ég vona ekki ţví verđi ekkert ađ gert á húsnćđismarkađi ţá er illa komiđ fyrir eitt samfélag.
Annars bíđ ég eftir vorinu svo ekki sé minnst á sumariđ sem mađur leyfir sér ađ vona ađ verđi okkur blítt ţetta áriđ eftir hryssingslegt veđurfar á vetrarmánuđum.
kv.Guđrún María.