Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Ólöglegt verðsamráð ha ha ha... auðvitað allt löglegt.
Miðvikudagur, 31. október 2007
Hvað er eiginlega um að vera ? Hvernig getur mönnum dottið það í hug að eitt fyrirtæki sem á þrjár verslanakeðjur geti haft verðsamráð ? Það skyldi þó aldrei þurfa að skoða eitthvað annað svo sem markaðshlutdeild.
kv.gmaria.
Segjast aldrei hafa haft samráð við keppinauta á markaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hlutverk verkalýðsfélaga er að semja um kaup og kjör félagsmanna en EKKI að stjórna landinu.
Miðvikudagur, 31. október 2007
Launþegar hafa fengið nóg af alls konar handabandasamkomulögum sem og yfirlýsingum allra handa sem hent hefur verið inn í kjarasamninga þar sem verkalýðsforystumenn þykjast hafa náð samkomulagi við stjórn landsins ( sem þó breytist milli kosninga ) um þetta eða hitt sem ígildi þess að allt gangi eftir og lúsarlaun skuli áfram við lýði. Það þarf að árangurstengja laun forystumanna verkalýðshreyfingarinnar við ákveðið viðmið hækkunar lægstu launa í næstu kjarasamningsgerð. Sama skyldi að sjálfsögðu gilda um þá er þeir hinir sömu skipa í stjórnir lífeyrissjóða hvað laun varðar því launþegar borga brúsann.
kv.gmaria.
Við Íslendingar erum orðnir sérfræðingar að búa til vandamál þar sem engin eru.
Miðvikudagur, 31. október 2007
Við nennum ekkert að vera að velta okkur of mikið upp úr alvöru vandamálum, frekar búum við til ágreining um eitthvað sem mögulega gæti verið hægt að rífast um, þar sem aukaatriði verða eins og skot að aðalatriðum og tilgangur og markmið verða eins og olía á eldinn í gamlársbrennunni. Við þurfum að sundurgreina allt og skilgreina í yztu æsar svo mjög að enginn getur komið heim og saman því sem sundurgreint hefur verið að lokum. Erjur og illindi sem menn forðum gerðu upp með öxum og spjótum eru nú flest háð með pennanum eða réttarara sagt lyklaborðinu sem tekið hefur yfir hlutverk blekpennans. Nú synda menn í tjáningarfrelsinu sem aldrei fyrr sem eðli máls samkvæmt leitar marka eins og flest í mannlegu eðli.
kv.gmaria.
Verður að loka heilsugæslustöðvum í Reykjavik vegna hundruð milljóna skulda ?
Miðvikudagur, 31. október 2007
Heilsugæslan skuldar Landspítalanum og Landsspitalinn skuldar öðrum... verður að loka heilsugæslunni ????? HALLÓ, HALLÓ, á meðan ferðast ráðherrar heiminn á enda til þess að auka útrásina hina miklu, þar sem kökunni var stolið úr krúsinni í Orkuveitunni og almenningur hafður að fífli. Ómældum fjármunum varið í endurgerð ónýtrar ferju til fólksflutninga osfrv..... samt er tekjuafgangur á fjárlögum síðasta árs. Þarf ekki að fara að skoða hið lagalega hlutverk eða ætlar hið opinbera ef til vill að fara að endurgreiða landsmönnum skatta vegna skorts á þjónustu sem það lögum samkvæmt skuldbindur sig til að veita.
kv.gmaria.
AF hverju geta menn ekki talað um tölur í þessu sambandi ?
Miðvikudagur, 31. október 2007
Samninga eftir samninga eftir samninga hafa menn talað um hækkun lægstu launa en engu fengið þokað. Ég vænti þess að launþegum verði ekki boðið það einu sinni enn.
kv.gmaria.
Starfsgreinasambandið kynnti SA áherslur í komandi kjaraviðræðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Annaðhvort hefur ríkið efni á því að reka grunnheilsugæslu fyrir skattfé eða ekki.
Miðvikudagur, 31. október 2007
Það er að æra óstöugan að skattgreiðendum í landinu skuli þurfa að berast fréttir sem þessar til eyrna þess efnis að grunnheilbrigðisþjónusta skuldi hundruð milljóna á sama tíma og fjármálaráðherra gumar sig af tekjuafgangi milli ára.
kv.gmaria.
Heilsugæslan skuldar birgjum 320 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þróun byggðar í borgríki og sitjandi stjórnvöld horfa þegjandi á líkt og það sé ekki þeirra að móta skipulag.
Þriðjudagur, 30. október 2007
Þegar svo er komið að bílaeign per landsmann er með því móti að ekki samræmist uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu fer gamanið við það að búa í borgríkinu að kárna. Stjórnvöld sem sitja í landinu hafa horft á þessa þróun í langan tíma án þess að hafa þóst geta spyrnt við fótum sem er fyrir það fyrsta mistök í stjórnuninni og í öðru lagi hreint ábyrgðarleysi til framtíðar litið. Meint markaðslögmál undir formerkjum viðskiptafrelsis í sjávarútvegi er rót vandans þar sem mestu stjórnmálalegu mistök síðustu aldar urðu til við framsalslögleiðingum millum sjávarútvetgsfyrirtækja. Þau mistök þorir enginn að horfast í augu við enn sem komið er og breytir þar engu þótt nýr flokkur hafi komið að stjórn landsmála nú í vor. Þróun byggðar skipulag og uppbygging landsbyggðar úr rústum kvótakerfisins við stefnubreytingu þar á bæ er forsenda þess að horfa fram á veg.
kv.gmaria.
Lokuð meðferðarúrræði til að höndla fíkniefnavandann skortir hér á landi.
Þriðjudagur, 30. október 2007
Það kostar fjármuni að takast á við hvers konar vágesti þar með talið fíkniefni . Því fyrr sem takast kann að ná einstaklingum út úr þeim vítahring sem notkun fíkniefna er því betra og ódýrara fyrir eitt þjóðfélag til framtíðar litið. Tilraunir hér á landi varðandi það atriði að fá börn með eigin vilja og foreldra í opnar meðferðir fram og til baka út og inn , sitt á hvað þar sem allir skrifa undir glaðir með viljann sem síðan endist skammt og barnið komið út úr prógramminu skömmu síðar heim aftur í neyslusamfélagið og sama saga endurtekur sig aftur og aftur, hefur gengið sér til húðar. Of mikið umburðarlyndi á þessu stigi máls er engum til góða að ég tel, og meðan foreldrar hafa yfir börnum sínum að segja sem er til átján ára aldurs þá er það lágmark að samfélagið hafi yfir að ráða lokuðum meðferðarúrræðum til að vinna úr vandanum með fagfólki að störfum.
kv.gmaria.
Risavaxin olíufiskveiðiskip og róbotar við mjólkurframleiðslu = sjálfbær þróun ???
Þriðjudagur, 30. október 2007
Það er ótrúlegt hve oft orðið sjálfbærni er notað varðandi framleiðsluaðferðir gömlu atvinnuveganna hér á landi, landbúnaðs og sjávarútvegs, þótt aðferðafræði á hvoru sviði fyrir sig sé svo langt frá því að flokkast undir nokkuð sem talist getur til sjálfbærni í raun. Olíunotkun er stór kapítuli framleiðslu á báðum sviðum, of stór. Ég vildi sjá krufið til mergjar hve mikið er notað af olíu til að afla annars vegar 20 kílóa af þorski og hins vegar 20 lítra mjólkur. Kanski þessar upplýsingar séu einhvers staðar til og ef svo er væru ábendingar þess efnis vel þegnar.
kv.gmaria.
Það þarf að létta skattalögum af almenningi í landinu, lækkun vörugjalda er eins og hin stórvitlausa lækkun virðisaukaskatts á matvöru, sem skilar sér ekki til almennings.
Mánudagur, 29. október 2007
Það er alltaf sama handapatahagfræðin sem uppi virðist vera og lækkun vörugjalda er aðgerð sem menn geta gleymt að skili sér til almennings frekar en lækkun virðisaukaskatts á matvöru sem kom til fyrr á þessu ári en engin varð var við að lækkaði verðlag. Lækka þarf skattaálögur á almenning og hækka skattleysismörkin, sem er eina raunhæfa aðgerðin til kaupmáttaraukningar og innlegg í kjarasamninga sem fyrir dyrum eru.
kv.gmaria.