Íslendingar munu ALDREI borga brúsa af ónýtu regluverki Evrópusambandsins í frjálsu flæði fjármagns.

Þótt villuráfandi aðilar við stjórn landsins hafi troðið gegnum þingið aðildarumsókn að Esb,  sem er pólítísk tímaskekkja, til þess að hanga saman við valdatauma, þá kemur það ekki til greina að þjóðinni verði boðið að verða borgunarmenn fyrir ónýtu regluverki Evrópusambandsins og illa starfhæfu eftirliti með slíku.

Detti kjörnum fulltrúum þjóðarinnar í hug að bjóða mönnum upp á að samþykkja Icesave samning þann sem rúllað var fram , þá hljóta skattgreiðendur að rísa upp og vísa þessari stjórn frá völdum.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband