Hver vitleysan á fætur annarri frá þessari vinstri stjórn.

Ég er ansi hrædd um það að ýmsir hugsi með sér nú um stundir að lengi geti vont versnað, og flest allt er komið hefur frá þeirri ríkisstjórn sem settist við valdatauma eftir síðustu kosningar er sannarlega ekki það almenningur taldi sig hafa verið að kjósa sér til handa.

Að VG og Samfylking færu að blessa gjaldþrota tryggingarfyrirtæki, og veita fjármunum úr ríkissjóði í kreppu, á sama tíma og búið er að tjalda fram samningum  þar sem setja skal á þjóðina í heild á hausinn, af einkavæðingaræðibunugangi öfgafrjálshyggjunnar sem allur fór í hundana.

Því til viðbótar er búið að hækka og hækka skatta á skatta ofan meðan engin raunhæfur niðurskurður hefur farið fram hjá hinum annars umfangsmikla opinbera kerfi, líkt og það viðhaldi sjálfu sér sjálfkrafa einhvern veginn.

Á sama tíma kemst hinn vinnandi maður ekki gegnum skuldabyrðina af verðlausum eignum, sem hann situr uppi með.

Engar hugmyndir um atvinnusköpun, af hálfu ráðamanna, það á víst að koma af sjálfu sér meðan hvatinn til að vinna vegna skatta er lítill og verðtrygging lána viðheldur og hækkar fjárskuldbindingar og verðlag allt með hinni heimskulegu samtengingu þeirrar ráðstöfunar.

Ég hef leyft mér að efast um það að þessir flokkar ráði við það að stjórna landinu.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband