Tilfinningar tengdar Hótel Valhöll.

Það er ósköp að horfa upp á þetta hús brenna til grunna, en þar sem ég gifti mig á sínum tíma í Þingvallakirkju, var haldin veisla fyrir nánustu í Hótel Valhöll, eins og sennilega á við um fleiri en mig.

Maðurinn minn heitinn og barnsfaðir lét síðan líf sitt, síðar sjálfur í bruna sem varð mikið fréttaefni, þannig að eldsvoðar hreyfa óhjákvæmilega enn meira við mér.

Þessi dagur situr hins vegar enn í mínu barnsminni vegna þriggja sem fórust á Þingvöllum sama dag einnig í eldsvoða en þar var um að ræða Bjarna  heitinn Benediktsson og fjölskyldu.

Það er sérkennileg tilviljun að þessi bruni skuli verða sama dag.

kv.Guðrún María.


mbl.is Valhöll brennur til grunna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband