Fjármálalöggjöf Evrópusambandsins var ónýt.

Mjög fróðlegt að lesa þessa skýrslu hollensku rannsóknarnefndarinnar, þar sem m.a. kemur þetta fram.

" Samkvæmt niðurstöðu rannsakendanna, lagaprófessoranna Adrienne de Moor-van Vugt og Edgar du Perron, þá gat DNB ekki með nokkrum hætti leyft sér að vara við stöðu Landsbankans og Icesave. Slík aðvörun var ekki einungis lagalega óleyfileg, heldur var hún heldur ekki raunhæf þar sem hún hefði nánast örugglega orsakað áhlaup á Icesave og Landsbankann, ekki bara í Hollandi, heldur hvar sem hann starfaði.

Í skýrslunni kemur einnig fram að DNB gat heldur ekki veitt Landsbankanum aukaaðild að innstæðutryggingakerfi landsins þar sem slíkt stríddi gegn löggjöf Evrópusambandsins (ESB). "

Þarna er því um að ræða gat á einu fjármálakerfi þar sem tilfærsla fjármuna hefur ekki fallið undir og með ólíkindum að þetta skuli hafa verið mögulegt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gátu ekki stöðvað Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: DanTh

Guðrún, ég verð að fá að bæta hér inn að Jónas Fr. Jónsson hefur reynt að þvinga Sigríði Benediktsdóttur út úr rannsóknarnefnd Alþingis vegna almennra ummæla hennar um ábyrgð eftirlitsstofnana hér á landi í þessu máli. 

Í greininni sem þú vitnar í, koma fram ásakanir frá Hollendingunum um að FME hafi ekki starfað að heillindum í upplýsingagjöf sinni um stöðu þessara mála.

Rangar upplýsingar frá FME

Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, sagði á blaðamannafundi 15. október síðastliðinn að DNB hefði fram á síðustu stundu fengið upplýsingar frá Íslandi um að allt væri í lagi með Icesave-reikningana. Hann hélt því einnig fram á sama fundi að DNB hefði fengið rangar upplýsingar um greiðsluþol íslensku bankanna frá FME út septembermánuð.

Höldum þessu að almenningi því það má ekki verða að þau öfl sem hafa reynt að draga heillindi Sigríðar Benediktsdóttur og Evu Joly í efa, fái að grafa undan trúverðugleika þessara kvenna með illmælgi og röngum sakargiftum.

DanTh, 18.6.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll.

Já að sjálfsögðu skal það meðferðis sem satt er og rétt, takk fyrir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.6.2009 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband