Stjórnmálin snúast um hagsmuni fólksins í landinu ekki hagsmuni stjórnmálaflokkanna.

Þegar flokkar verða að stofnunum þar sem allt virðist miðast við það atriði að viðhalda " flokknum " án tengsla við fólkið, þá er illa komið.

Hve opin og lýðræðisleg vinnubrögð iðka þeir flokkar sem starfa i landinu, hvað varðar opna fundi um mál öll sem til umræðu eru hverju sinni ?

Það ætti nú ekki að vera ýkja flókið að taka það saman af heimasíðum stjórnmálaflokkanna, hve oft menn funda um hin ýmsu mál, um land allt.

Fari hagsmunir fólksins og hagsmunir flokka ekki lengur saman, þá er eitthvað að.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viltu lesa þessa færslu mína betur til að skilja það sem ég er að meina og ekki rangtúlka hana. Meiningin var að reyna að láta þá sem lesa bloggið mitt að skilja að illdeilur eru aldrei til góðs og ekki baktjaldamak heldur.

5.4.2009 | 13:17

Illgresi í garðinum

Ekki er það mín meining að líka Guðrúnu Maríu við illgresi en það sem ég átti við að það hefur verið ósætti og það er ekki gott. Vonandi finna þeir sem voru ósáttir frið á öðrum vettvangi þeim sjálfum og öðrum til góðs.

Þegar ég var í sveitinni í gamla daga var það siður að ef að það fannst illgresi á einum stað í garðinum var reynt að uppræta það á öllu svæðinu svo að það smitaði ekki út frá sér. Það sama má segja um í þessu tilfelli. því vonandi er nú lokið því ósætti sem verið hefur í Frjálslynda flokknum. Nú er garðurinn hreinn og hægt er að byrja ræktun upp á nýtt.


mbl.isSegir skilið við Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafía Herborg (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 13:48

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Ólafía, sem ég hefi aldrei hitt né veit að öðru leyti deili á, utan þess að þú gekkst í flokk sem ég tilheyrði en sagði mig úr.

Við þig vil ég segja það að þín upphaflega bloggfærsla sem þú svo breyttir, að öllum líkindum hafandi fengið comment við hana, var þér lítt til sóma, sökum fordóma eins og svörin bera með sér.

Þér væri nær að biðjast afsökunar í stað þess að reyna að bera í bakkafullan lækinn af misviturlegum athugasemdum um hluti sem þú veist ekkert um.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.5.2009 kl. 02:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband