Hið pólítiska landslag í aðdraganda kosninga.

Meint vinstri stjórn hefur sest að völdum í nokkra daga fram að kosningum, að mínu viti allsendis ekki til þess að skýra hið íslenska stjórnmálalandslag fyrir fimmaura.

Það var eindæma klaufalegt að ekki skyldi kallað til þjóðstjórnar þegar hrun bankanna í október varð raunin.

Þess í stað upphófust afskaplega heimskulegar tilraunir þáverandi ríkisstjórnar til þess að hanga á völdum með tilheyrandi andstöðu almennings sem stjórnarandstaða sá sér leik á borði að kynda undir.

Var það almenningi í landinu til tekna að setja fyrrum ráðherra á biðlaun og ráða nýja nokkra daga ?

NEI.

Auðvitað átti að koma kjörnum fulltrúm einnar þjóðar saman að stjórn þjóðarskútannar við þessar aðstæður sem voru einstakar hér sem annars staðar.

Umræður á Alþingi um mál sem minnihlutaríkisstjórn varin vantrausti af einum flokki reynir að koma í gegn kallar á málþóf og endaleysu sem almenningur þarf  síst af öllu, á að halda nú.

Þetta mátti fyrirbyggja en var ekki gert, og því má þjóðin horfa á pólítískt skeggtog millum flokka allra handa í aðdraganda kosninga á löggjafarþinginu án þess að hægt sé að þoka nauðsynlegum málum.

kv.Guðrún María.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband