Lifað af landinu.

Fannst alveg yndislegt að sjá Kastljós kvöldsins, veita innsýn á  bændabýli sem notar og nýtir mjólkina úr kúnum til framleiðslu til eigin nota.

Skilvinda og strokkur er eitthvað sem vakti gamlar minningar úr minni sveit því hvoru tveggja var til í mínum uppvexti en skilvindan meira notuð en strokkurinn, til skamms tíma.

Sveitarómantíkin sem auðvitað blundar innra með manni fór á fullt, við að sjá kýr, kindur og hesta, og bónda að handmjólka kýr í íslenskri sveit í Rangárþingi.

Sjálf var ég nú nær handlama að mjólka eina kú sem unglingur, en það reyndi ekki mikið á þá hæfni mína lengi því mjaltavél kom til sögu áður en ég hleypti heimdraganum.

Síðar urðu smábændur óhagkvæmir samkvæmt skilgreiningu stjórnvalda og faðir minn heitinn dró sig út úr framleiðslu á mjólk, því stefnan var færri og stærri bú helst með mjaltavélmennum þar sem bóndinn situr við tölvu og kýrnar ganga í vél til mjalta.

Þetta ferðalag Kastljóss var hins vegar fróðlegt og sannarlega sýnishorn um það hvernig hægt er að lifa af landinu.

kv.Guðrún María.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband