Lýðræðisþróun fram á veg, veltur á því að nota sinn lýðræðislega rétt.

Þótt allir tali þannig nú um stundir að helst skuli " fundið upp hjólið að nýju " varðandi lýðræði í einu landi, þá eigum við Íslendingar nú mun meiri möguleika til þess hins arna en margar aðrar þjóðir í veröldinni.

Réttur hvers einstaklings til þess að hafa áhrif á að móta sitt samfélag veltur fyrst og síðast á vilja til þáttöku um þau hin sömu mál til orðs og æðis.

Þar þarf vissulega kjark og þor til að ganga gegn viðteknum venjum hvers konar til þess að breyta um áherslur, en slíkt skilar sér alla jafna í nýju gildismati á aðferðir hvers konar.

Eitt samfélag þarf að virða sína þegna óháð þjóðfélagsstöðu í hverjum þeim ráðstöfunum sem hið opinbera hefur fram að færa.

Þáttaka í stjórnmálum var ekki upp á marga fiska fyrir fjármálahrunið en horfir vonandi til bóta.

kv.Guðrún María.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Til að breyta viðteknum venjum er bara að taka ekki við þeim. Ef einn gengur á undan með gott fordæmi hljóta menn að virða það og taka til eftirbreytni finnist þeim venjurnar viðteknu ekki nógu góðar. Þannig finnst manni að það ætti að vera en reyndin er sú að sá sem breytir eftir eigin sannfærinug er oft dæmdur harkalega og þarf jafnvel að þola einelti meðal sinna félaga. Ég skil ekki síðustu setninguna um þátttöku í stjórnmálum en það gerir ekkert til . kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 1.2.2009 kl. 10:38

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Kolla.

Það hefur komið til vakning eftir fjármálahrunið, og þess vegna segi ég þetta.

Þáttaka í stjórnmálum var ekki upp á marga fiska fyrir fjármálahrunið en horfir vonandi til bóta.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.2.2009 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband