Framboð til forystu í Frjálslynda flokknum.

Við erum tvær konur sem gefum kost á okkur til forystustarfa í Frjálslynda flokknum.

Sú er þetta rítar til formanns flokksins og Ásgerður Jóna Flosadóttir til varaformanns í flokknum.

Við bjóðum flokksmönnum valkost til endurnýjunar og látum ekki okkar eftir liggja sem konur í þessu efni.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sæl Guðrún, það er gott að fleiri sjá það að breytingar eru nauðsynlegar. Gangi ykkur vel ég hef lengi verið talsmaður þess að sjá konu eða konur í fronti flokksins.

Hallgrímur Guðmundsson, 1.2.2009 kl. 21:29

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Hallgrímur. Heldurðu að konur fiski meira í þessum sjóaraflokki ef þær taka skútuna alveg yfir? Ætlaðar þú að henda formanni vorum í knennmannskjaft ?  og varaformanni líka ? Hverjir eiga svo að verja bornin? Hvað myndir þú gera. Kjósa konum sem hafa slæmt orð á ser

kveðja norður Kolla.... ekki hrifin.

Kolbrún Stefánsdóttir, 1.2.2009 kl. 23:14

3 identicon

Góðan dag......ég get nú bara ekki orða bundist yfir dónaskapnum hjá Kolbrúnu Stafánsdóttur og gat ekki á mér setið að segja nokkur orð :)

Þarf nokkuð a vera með dónaskap þó Guðrún María taki þá ákvörðun að bjóða sig fram til formanns í Frjálslynda flokknum??? Ég bara spyr....

Ég er nú á því að það eigi ekki að kjósa konu bara af því að hún er kona heldur eigi að kjósa hana af því að fólk treystir henni til verksins.... og það gæti nú bara allt eins verið Guðrún María

Og hvaða skot og vitleysa er þetta með að kjósa konur sem hafa slæmt orð á sér ? 

Ég kenni mínu barni það að það sem fer einu sinni á netið er ekki aftur tekið..... 

Ég get nú bara ekki séð betur en það sé einhver meiriháttar hræðsla hér í gangi með að Guðrún María gæti unnið þetta, sem væri bara hið besta mál.....Guðjón Arnar er ekkert heilagur maður og hlítur að vera það skynsamur maður að vita að allt getur gerst í svona málum og hvað þá heldur á þeim dögum sem við lifum á í dag :)

Ég held að fólk eigi nú bara að hætta öllum skotum og niðurrifstali um náungann og reyna bara að láta gott af sér leiða

Svo ég segi nú bara áfram Guðrún María og gangi þér vel í því sem þú tekur þér fyrir hendur

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 14:35

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Martha. Þetta átti ekki að vera dónaskapur hvorki á Guðrúnu Maríu eða neinn annan. Ég var að tala um hugmyndafræðina um að yfirtaka stjórn "af því þær séu konur". Auðvitað geta allir gefið kost á sér. Ég hef mikið karpað við sjómenn um jafnréttismál og því tók ég þennan pól í hæðina með Hallgrím sem er sjómaður. Ég var líka svona meðfram að kalla fram umræðu um jafnréttismál og hversu langt á að ganga til að jafna eða ójafna stöðu kvenna. Sjálf hef ég brotið múra í karlaheiminum og veit að allt er mögulegt í þeim efnum. Ég óska Guðrúnu Maríu alls hins besta í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur en styð hana ekki að þessu sinni. Að skipta heilli stjórn út korter fyrir kosningar er ekki vænlegt til árangurs að mínu áliti.  Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 3.2.2009 kl. 16:20

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Konur eru konum verstar, það er gamla sagan.

Sigurgeir Jónsson, 5.2.2009 kl. 21:33

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

  en karlar eru þeir verstir? Þetta er einn ömurlegasti frasi allra tíma Sigurgeir vegna þess að þeir virka bara á konur en ekki karla... ætli það sé femínismi kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 5.2.2009 kl. 22:44

7 identicon

Sæl Kolbrún.

Já að skipta út heilli stjórn korteri fyrir kosningar er nú sennilega það sem þið flokkurinn þurfið nauðsynlega núna, og ég meina það á jákvæðan hátt, því ég get nú bara ekki betur séð en flokkurinn hafi í dag 1% fylgi svo það getur nú varla orðið mikið verra að fá inn nýtt fólk til forystu og ég er nú bara alveg viss um það að þið fengjuð fleiri atkvæði en þetta - bara út á það að sýna fram á það að þið eruð tilbúin að breyta um forystu og hleypta nýju fólki að ........ :)  ásamt því að hafa koma ykkur upp góðri stefnuskrá :)

Ég tók eftir því að þú svaraðir ekki spurningu minni með:  

hvaða skot og vitleysa er þetta með að kjósa konur sem hafa slæmt orð á sér ? 

Kkv.

Martha               

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 17:39

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Martha. Þakka þér fyrir áhuga þinn á framgangi Frjálslynda flokksins. Það kann vel að vera að það gæfi fleiri atkvæði að skipta um stjórn, þó ég haldi annað, og það segi ég satt að ég held ekki fast í mitt sæti í stjórn ef önnur framboð koma í það. Mér finnst hinsvegar kvennaframboð bara af því það eru konur ekki fýsilegt. Ef konur geta ekki boðið fram á eigin forsendum eða eigin tiltrú er það ekki lóð í jafnréttisbaráttuna að mínu áliti heldur þvert á móti. Þetta er bara mín skoðun, mótuð af langri jafnréttisbaráttu í gegnum árin. Skot og vitleysa segir þú. Ég var að efna til umræðu við sjómann og vitna í karp mitt við marga þeirra um jafnréttismál t.d. hvað varðar börnin og uppeldi þeirra og var líka að spá í hversu langt þeir vilji þá ganga til að stilla upp konum bara af því þær eru konur. Það er alveg óháð þessu tiltekna framboði. Ég taldi mig hafa svarað spurningunni í fyrri færslunni. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.2.2009 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband