Hvernig getur óveiddur fiskur verið veð í fjármálastofnunum hér á landi ?

Ég hvet fólk til þess að kíkja á útskýringar bankanna varðandi skuldir sjávarútvegsfyrirtækja sem einn þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði fjármálaráðherra um á Alþingi.

Bankarnir eru ekki með sundurliðun á því hvað veðin standa fyrir en jafnframt er þar mismunandi mat millum banka sem er afar sérstakt.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Skulda bönkunum 427,5 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er svo ótrúlega margt í okkar "fjármálaheimi" sem er með hreinum ólíkindum.  Skuldastaða útgerðarinnar er bara brot af því.

Að geta leikið sér með eina af "auðlindum þjóðarinnar" á þann hátt sem við höfum gert, frá því að "framsalið" var heimilað og þar með talin veðsetning á kóda, er að mínu mati "fáránleg" og til að auðvelda "kvótabraskið" enn frekar.  Það var "gott" að horfa á síðasta Silfur-Egils, þar fór mætur maður yfir "ruglið" í fiskveiðikerfi okkar, og útskýrði vel "fjármálaframkvæmdina".

Ef ég spái í hvað "almenningur gæti fengið að veðsetja" í stað íbúðarinnar, ef hún væri 100% veðsett og það eru þær víst örugglega margar í dag.  Gæti almenningur hugsanlega veðsett t.d., heiðbláann himinninn yfir húsinu, skýin eða jafnvel mánaskinið.  Svo fjölgar skýjunum og mánaskinið eykst, þá veðset ég bara meira. Þetta er ekki einu sinni orðið skemmtilegt :-(

Nei, það er ekkert auðvelt að skilja lengur hvað er í gangi á þessu "blessaða landi"  ;-), ekki bara í "fjármálabraskinu heldur flestu".

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 01:58

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Páll.

Það atriði að veðsetja óveiddan fisk í fjármálastofnunum segir meira en mörg orð um efnahagslíf í einu landi, að mínu viti og óheilbrigði þess, en það hefur ekki fengist rætt í fjölmiðlum þessa lands.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.1.2009 kl. 02:05

3 identicon

Sæl Guðrún,,það sem mér finnst orðið furðulegast,við þetta veiðiheimilda svínarí,er að  þegar horft er á að sjálfsagt eru 99 % þjóðarinnar á máti þessari kerfis villu.og vill að ríkið taki þetta yfir,og leigji og útdeili,á heilbrigðan hátt. En þessi 99 % þjóðarinnar,virðast ekki geta fundið,neinar aðferðir og neina aðila til að koma þessu í kring.Mér sýnist að allir þeir alþingismenn(að Sverri Hermannsyni frátöldum) sem þóst hafa ætlað að vinna í þessum málum hafi brugðist,og gert meiri skaða en gagn.Ég veit að það eru heitir andstæðingar svínarísins í röðum alþingismanna,í flest öllum flokkum á þingi,,en þeir virðast ekki þekkjast.og því ekki getað tekð saman höndum til að vinna á meininu..En það er einn plús við þetta,maður þarf ekki að paufast á kjörstað,þegar þar að kemur,,ekkert um að kjósa,eingir valkostir,allt grátt.

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 19:08

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún. Bankakerfið hefur verið rekið á grundvelli algjörum
mafíuósagrunni á s.l árum. Tekin veð í hverri loftbólunni á fætur
annari með allskyns hundakúnstum og blekkingarvefum eins og
dæmin sanna hvert af öðru sem eru að koma upp á yfirborðið í
dag, enda hrundi spilaborgin á einni nóttu. Veð í óviddum fiski er
bara angi af ruglinu og skrípaleiknum sem er búin að viðgangast. Á
sá skrípaleikur enn að halda áfram?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.1.2009 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband