Trúin er af hinu góða.

Ég óska páfa gleðilegra jóla þótt ég tilheyri ekki söfnuði hans,en  trúin á sér ekki landamæri að mínu viti , og trúin er forsenda þess hver einasti maður eigi von, sem finna má í boðskap biskupsins í gær um mátt bænarinnar í lífi mannsins.

Bænin gegnir og hefur gengt miklu hlutverki í mínu lífi nokkuð lengi, bænin gefur mér von , sem aftur gefur mér vellíðan og væntingar, bænin gefur mér færi á því að tjá mínum Guði allt sem ég vil tjá mig um, og bænin er í raun sálarhjálp hvert kveld, uppgjör eftir hvern dag, brú milli þess sem er og þess sem verður.

kv.gmaria.


mbl.is Páfi sagði „Gleðileg jól"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Guðrún.

Satt mælir þú. Og ef að fólk áttaði sig betur á þessu þá væri vel.

Góðar stundir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 04:02

2 identicon

Von um hvað... að verða ekki pyntaður að eilðifu?
Hugsaðu smá... ef pabbi þinn sendi þig í hremmingar og örbyrgð, smitaði þig af sjúkdómum... bara til þess að þú vælir og segir að hann sé bestur, er þetta það sem þú segir að sé von? Von um hvað?

DoctorE (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 09:23

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kærleikskveðja til þín og sonarins Gmaría mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2008 kl. 18:55

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Það er rétt hjá þér mín kæra að kærleikur og von um betri heim, betri daga, betra líf öllum til handa er verðugur boðskapur og sama er hvaðan gott kemur. Grey páfarnir verða að dubba sig upp í viðhafnarklæði og sitja háaldraðir, því þeir eru svo lengi að verða heilagir, í miklum hita og senda jólaóskir um heiminn. Þetta snertir marga og felst í tiltrú á heilagleikann. Allt gott um það. DoctorE er áreiðanlega trúleysingi og ég hef alltaf haft mjög gaman af hans commentum þó þau gangi langt út fyrir línu á stundum. Ég kem til með að sakna hans mikið á mbl.is /blogg þegar þessar nýju reglur taka gildi. Vil því nota tækifærið og óska honum/henni velfarnaðar og vona að viðkomandi yfirgefi ekki bloggið, heldur komi bara fram undir nafni. Sendi svo kærleikskveðjur vestur til þín Ásthildur sem berð nafn með rentu. jólakveðjur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.12.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband