Augnablik ! eru bankar ekki nú í ríkiseigu ?

Ég verð nú að segja að þessi frétt er eitthvað sem maður hélt sig varla mynd lesið hafa satt best að segja, því svo vill til íslenskar fjármálastofnanir eru komnar í eigu almennings í landinu á ný, og sitjandi stjórnvöld munu hljóta að fá upplýsingar þær sem þau óska eftir í því sambandi.

Eða hvað ?

kv.gmaria.


mbl.is Fallið verði frá kröfu um upplýsingagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er sammála þessu.  Hélt að bankarnir væru í rannsókn.  En svo virðist sukkið geti haldið áfram Í SKJÓLI BANKALEYNDAR.

Það er hægt að afnema bankaleynd með dómi, ef grunur leikur á að um refsivert athæfi sé að ræða.

Hver neitar að veita upplýsingarnar og eru að vísa í bankaleyndina, er það skilanefndin, nýji bankastjórinn eða....?

Helena (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 00:57

2 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Ég er ekki sammála. Hér skiptir ekki máli hvað maðurinn heitir. Það gilda lög um bankaleynd í landinu. Þau lög á að virða.

Þingmaður getur ekki kallað lækninn hans Jóns eða annars einstaklings fyrir þingnefnd og heimtað heilsufarsupplýsingar um hann. Upplýsingar sem viðkomandi þingmaður ætlar að setja um leið að gera opinberar. Tilgangur þingmannsins sá einn að koma sjálfum sér á framfæri.

Rétt er að blaðamenn hafa svipaðar reglur að uppýsa ekki um sína heimildarmenn.

Þessi krafa Ágústs Ólafar um að bankar eigi að brjóta lög um bankaleyndi til að þóknast honum er út í hött.

Það verður að standa vörð um ákveðna hluti hér í þessu landi þó mikið gangi á. Bakaleyndin er eitt af því. 

Þó þingmennirnir telji sig hafa fengið öll völd í samfélaginu aftur í sínar hendur þá skulum við ekki láta þá komast upp með að svínbeygja lögin eins og þeim dettur í hug.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 13.11.2008 kl. 01:39

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þingmenn eru bundnir trúnaði og þegar svo er komið að bankar eru aftur í eigu almennings hljóta fulltrúar almennings í landinu að hafa upplýsingar um starfssemi þeirra.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.11.2008 kl. 01:45

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Friðrik það er bara þannig að þegar menn eru búnir að setja landið á hausinn þá er bara komið nóg.

Einar Þór Strand, 13.11.2008 kl. 01:51

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sama hver á, leikreglum þarf að fylgja

Jón Snæbjörnsson, 13.11.2008 kl. 14:02

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kvitt

Kjartan Pálmarsson, 14.11.2008 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband