Dagur þess að axla ábyrgð 11 nóvember ?

Það er ekki á hverjum degi að menn segi af sér ráðherradómi eða þingmennsku hér á landi varðandi það atriði að axla ábyrgð.  Það hefur hins vegar gerst tvívegis sama dag ársins 11 nóvember, samkvæmt því sem kom fram hjá þeim félögum í Reykjavík síðdegis í dag, en Guðmundur Árni Stefánsson sagði af sér sem ráðherra sama dag á sínum tíma.

Vægast sagt einkennileg tilviljun, en afsögn Bjarna Harðarsonar nú brýtur að hluta til blað í sögunni, þar sem hann segir af sér sjálfur án þrýstings utanaðkomandi aðila.

Þinginu og Sunnlendingum er missir að Bjarna vil ég segja en ég efa það nú ekki að hann muni áfram láta í sér heyra um mál öll.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband