Á slóðum Emils í Kattholti.....

Aldrei þessu vant fór ég erlendis nokkra daga, að heimsækja ættingja sem nýlega hafa flutt í Smálönd Svíþjóðar, þar sem hann Emil í Kattholti á ættir sínar að rekja til.

Það eru tveir áratugir og tvö ár betur síðan ég hefi hleypt heimdraganum af landinu og vissulega upplífun að feta nýjar slóðir eins og alla jafna er.

Náttúran og kyrrðin hér allt um kring er sérstök þar sem skógurinn rammar inn skjól fyrir líf allt, og vötnin haldast í hendur við trjágróður um að auðga fjölbreytileika móður náttúru í hvarvetna.

Það var sérstök þorpshátíð í dag í þorpinu sem ég dvel með markaði og alls konar hátíðahöldum mjög skemmtilegt.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Flott  hjá þér Guðrún að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar.
Svipaðar tilfinningar þegar ég hleypi heimdraganum til Þýzkalands,
þá fyrst finnst mér ég vera kominn ,,heim" þótt heima á Íslandi sé
auðvitað best.

Bestu kveðjur til Svíþjóðar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.6.2008 kl. 01:21

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Ertu bara komin til Svíþjóðar. Gott hjá þér. Ég verð að segja að ég er afar hrifin af Svíþjóð, ég veit ekki alveg af hverju, en þangað hef ég komið nokkrum sinnum og spilað golf og ferðast um Mið-Svíþjóð. Var síðast í Stockholmi í maí. s.l. Vona að þú heillist eins og ég af landi og þjóð. Puss på dig. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.6.2008 kl. 19:21

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk, takk Guðmundur og Kolla.

kveðjur frá Svíþjóð.

gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.6.2008 kl. 21:32

4 identicon

Sæl Guðrún.

Megir þú njóta náttúrunnar meðal ættingja og vina.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 02:29

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk Þórarinn.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.6.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband