Og hefst nú skoðanakannanapólítik Samfylkingar.

Sé til stjórnmálaflokkur skoðanakannanna þá er það Samfylkingin sem virðist róa mjög á þau mið til stefnumótunnar hvers konar frá fæðingu flokksins í raun.

Skoðanakannanir gefa vísbendingu og vísbending er vísbending annað ekki.

Það atriði að róa með skoðanakannanir fram sem einhver sannindi um vilja þjóðarinnar til dæmis hvað varðar Evrópusambandsaðild meðan á sama tíma er rætt um að enginn viti hvaða skilyrði við myndum þurfa að uppfylla, né heldur hve mikið fullveldisframsal á yfirráðum yfir eigin auðlindum kunni að vera að ræða, þá er slík pólítik óábyrg að mínu viti.

Með sama móti mætti segja að þau stjórnvöld sem nú sitja við valdatauma væru þar allsendis ekki með réttu samkvæmt skoðanakönnunum vegna þess að 80 % landsmanna eru á móti núverandi fiskveiðistjórnunarskipulagi sem stjórnvöld sitja enn undir óbreyttu.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skv skoðanakönnun Fréttablaðsins fellur fylgi Samfylkingarinnar umtalsvert frá síðustu könnum. Sem bendir til að þjóðin er fara að
átta ig á lýðskrumi Samfylkingarinnar. Skoðanakönnun Fréttablaðsins um ESB var hins vegar afar leiðndi og hefur aldrei
verið spurt svona áður, og á því að taka niðurtöðuna með fyrirvörum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.4.2008 kl. 21:44

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Já ég tók eftir því, hátt í 10 % ef ég sá rétt.

Leiðandi spurningar í skoðanakönnunum gera þær hinar sömu ómarktækar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.4.2008 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband