Ég hef ALDREI áður upplifað þvílíkt og hluta þessa veðurs.

Hér á Reykjanesskaganum sem ég hefi nú verið búsett nokkuð lengi upplifði ég lengst af engin veður sem heitið gætu talist ofsaveður miðað við það sem maður upplifði í æsku undir Eyjafjöllum og hæst bar þar fárviðri sennilega 1973 er sveitin var í rúst meira og minna.

Seinni ár hefur veðurofsi hins vegar aukist hér svo um munar að mér finnst og mesti veðurhamur sem ég tel mig hafa upplifað var ca. tíu mínútna tímabil áður en óveðrinu hér síðasta föstudag slotaði.

kv.gmaria.


mbl.is Í hópi verstu veðra í 12-13 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæl frænka.

Það gat og getur gustað í sveitinni okkar,Gissur í Selkoti sagði einu sinni að hann hafi séð meri takast á loft og fjúka yfir réttarvegg á Hrútarfelli og það hefur verið 11/2-2 metra á hæð. Oft var maður sendur í að taka hey af girðingunum sem hafði fokið.Það var gaman í þá tíð í fallegri sveit með góðu fólki.

Guðjón H Finnbogason, 12.2.2008 kl. 21:53

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það ringdi hraustlega á föstudaginn og hið myndarlegast rok fylgdi með, en samt ekkert í líkingu við Eyjafjallarokin fannst mér.  En ég bý náttúrulega í svolitlu skjóli hérna við Gufuneskirkjugarð.  Húsin skýla líka mikið og allur trjágróðurinn svo þetta er varla sambærilegt.

Ester Sveinbjarnardóttir, 12.2.2008 kl. 23:04

3 identicon

Sælar, þetta með veðrið, mér líkar öll veður, rigningu, rok, slyddu, byl, éljagang, fannkomu, ofankomu, sólskin og sudda.  Sem sagt alla veðurflóruna.  En það verður að segjast eins og er þá er alltaf logn hér í Vesturbænum

kkv.

Ásgerður Jóna

asgerdurjona (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 23:24

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll.

Já Guðjón, það var nú ekki lítið sem maður velti fyrir sér frásögn Gissurar um merina sem fauk og nokkuð greindi menn á um hvort þetta gæti verið en í mikla veðrinu sem ég man fauk Bedford vörubill húsahæð, annaðhvort hjá Ástþóri frænda eða í Hvoltungu og þá fannst mér sagan um merina trúlegri.

Ester man kanski hvar......

Ásgerður þú hefur valið réttan stað.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2008 kl. 00:52

5 Smámynd: Halla Rut

Mikið ofsalega er ég orðin þreytt á veðrinu. Hlakka til vorsins.

Halla Rut , 13.2.2008 kl. 00:55

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Halla Rut , það er víst ábyggilegt að vorinu verður fagnað sem aldrei fyrr, þegar búið er að blóta þorrann.

Kemurðu ekki á þorrablótið ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2008 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband