Einhleypar konur í tæknifrjógvanir ???

Las það í einhverju blaði í dag að nokkrir alþingismenn ásamt heilbrigðisráðherra teldu það mikilvæga lagabreytingu að heimila einhleypum konum tæknifrjógvun.

Ég spyr á hvaða leið erum við og hvaða viðmið eru fyrir hendi í þessu efni varðandi það að hér sé um skort á réttindum að ræða varðandi það að einhleypar konur eigi þess ekki kost að fara í tæknifrjógvanir ?

Vantar læknavísindin verkefni ?

Gæti spurt fjölmargra annarra spurninga í þessu sambandi en læt þessar tvær nægja.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Og af hverju ekki?

Hlynur Jón Michelsen, 15.12.2007 kl. 02:33

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Viljum við að börn alist upp með einu foreldri ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.12.2007 kl. 01:05

3 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Hundruð barna alast nú þegar upp svoleiðis.

Á þá ekki að banna ógiftum stúlkum að verða þungaðar? 

Hlynur Jón Michelsen, 16.12.2007 kl. 01:37

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hlynur.

Maðurinn og náttúra hans hefur sinn framgang en vísindin eiga ekki að grípa inn í þá þróun að mínu viti.

Ógiftar stúlkur verða þungaðar vegna þess að þar hefur karlmaður komið til sögu sem faðir.

kv. gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.12.2007 kl. 02:52

5 Smámynd: Gísli Gíslason

http://www.abotinn.is/barnaheill/barnasattmali1.html

Barnasáttmáli Sameinuðuþjóðanna segir. 

7. gr.
1. Barn skal skráð þegar eftir fæðingu, og á það frá fæðingu rétt til nafns, rétt til að öðlast ríkisfang, og eftir því sem unnt er rétt til að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar þeirra.
18. gr.
1. Aðildarríki skulu gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að sú meginregla sé virt að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn og koma því til þroska. Foreldrar, eða lögráðamenn, ef við á, bera aðalábyrgð á uppeldi barns og því að barni sé komið til þroska.

Gísli Gíslason, 17.12.2007 kl. 23:46

6 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Það veit ég vel Gmaria en það var ekki það sem þú lagðir upp með. Þú spyrð...

Viljum við að börn alist upp með einu foreldri ?

Hlynur Jón Michelsen, 18.12.2007 kl. 03:12

7 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Hlynur Jón Michelsen, 18.12.2007 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband