Bandvitlaust veður í Hafnarfirði.

Hef sjaldan vitað eins mikið gúlp og gerði hér í kvöld, bókstaflega bandvitlaust veður og ekki hundi út sigandi. Rúðurnar í stofunni sem eru áveðurs dönsuðu og ég hélt mig hlémegin í íbúðinni.

Annars var veður þetta svo sem eins og samhljómur atburða dagsins í dag sem var einn af þessum dögum, þar sem maður veit vart hvað snýr upp eða niður , fram eða aftur.

Svo er nú það.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

"ekki hundi út stígandi" segir þú, viti menn ég og Pipp sem er silky terrier fórum í göngu rétt fyrir kl 12 í kvöld, jám, ég náði ekki andanum á meðan ég labbaði á móti þessu bandvitlausa veðri en, sá litli lét sér fátt um finnast enda í regngalla lét sig hafa þetta og gerð það sem hann þurfti að gera,við komum svo inn í hús, gegn um vot og núna sit ég hér og skoða bloggið í náttkjól og vona að þetta veður fari nú að lægja. 

Knús frá Pipp sem er óttrúlega duglegur hvutti

Linda, 11.12.2007 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Linda.

Dugnaður er þetta, takk fyrir knúsið, knús til baka.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.12.2007 kl. 01:14

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Það er leitt að heyra að þú hafir átt erfiðan dag. Veðrið var skelfilegt í gærkvöld og hvað mig varðar þá setjast alltaf að mér hugsanir um besta vin minn og mág sem varð úti í einmitt svona veðri í jan 2001. Það gerir mig afar dapra og sorgmædda sem er auðvita alveg óþarfi þar sem þeim atburði verður ekki breytt. Ég beið bara eftir að útigrillið fyki til hafs en það lafði :)  Farðu vel með þig elsku kerlingin. kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.12.2007 kl. 15:18

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já óhjákvæmilega leitar maður samlíkinga í atburðum hvers eðlis sem eru. Við höfum misst marga góða menn í skaðaveðrum Íslendingar, blessuð sé þeirra minning.

Já ég reyni að fara vel með mig Kolla mín.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.12.2007 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband