Hugsanlega þarf að skoða áætlanagerðina í þessu sambandi.

Við skoðun á áætlunum fjármálaráðuneytis sem birst hafa fram í tímann  nú í nokkur ár, til dæmis um heilbrigðismálageirann verður að segjast eins og er að heildarútgjöld millum ára hafa varla verið uppfærð í samræmi við fólksfjölgun í landið hvað þá kostnaðaraukningu. Því skyldi engan undra að verkefni hvers konar á vegum hins opinbera standist ekki þegar upp er staðið. Hins vegar er það og hefur verið viðtekin venja að allt er lýtur að opinberum rekstri þurfi ekki að vera á núllinu. Ennfremur í þessu sambandi má geta þess hve skökku skýtur við að sitjandi ríkisstjórn gumi sig af tekjuafgangi meðan stofnanir hins opinbera kvarti yfir sárri fjárþörf til að uppfylla grunnþjónustuþætti. Þar er lítið sem ekkert samræmi á milli.

kv.gmaria.


mbl.is Flest verkefni fram úr áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

en eigum við ekki að styrkja óháðan til þess að gera könnun á hversu nákvæmt áætlanakerfið í dag er?

Ég var að uppgötva að Sveinar hafa ca. 700 kr. í byrjunarlaun. Miðað við 40 daga vikuvinnu eru þeir þá með ca. 112.000 á mánuði.

Frjálslyndir gætu hugsanlega farið fram á hækkun grunnlauna sveins, en sennilega myndi það hækka vaxtabyrðina mína...

Hverjum er þá þjónað? Á ég að kjósa Frjálslynda?

Kveðja, Kristbjörg

Kristbjörg (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 03:24

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Kristjbjörg.

Fyrir það fyrsta þarf hvers konar áætlun að byggja á raunhæfum forsendum þar sem áætlanir  hvers konar þurfa að taka mið umfram verkefni hvert að hluta til í stað þess að standast illa eða ekki. Grunnvinna alþingismanna þess efnis að setja saman fjárlagaramma sem stenst er þvi forsenda þess er á eftir kemur þ.e hvort áætlanir standist eða ekki.

Að þvi marki þarf að vinna.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.9.2007 kl. 03:32

3 identicon

Ég vil líka heilan heim. Hvernig áætlun myndir þú setja upp fyrir lítið verkefni, t.d. eins og endurnýja baðherbergi?

Kv. Kristbjörg

Kristbjörg (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 05:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband