Umsvif Ríkisútvarpsins úr öllum takti við annað í þessu samfélagi.

Mér hefur löngum verið það óskiljanlegt hvers vegna RUV telur sig þurfa að reka sérstaka tónlistarrás, þ.e Rás 2, en þetta hlutafélag er rekið með nefskatti á landsmenn, alla, ásamt þáttöku á auglýsingamarkaði, sem aftur skekkir alla samkeppnisstöðu annarra á þeim smáa markaði.

Því til viðbótar hefur það verið allt að því viðtekin venja að hinir og þessir "innanbúðarmenn " sem hafa verið dagskrárgerðarmenn, til lengri eða skemmri tíma, en gefa einnig út tónlist til sölu og er hampað eins og silkihúfum með spilun fram og til baka.

Það er allavega mín upplifun.

Rekstur tveggja rása er óþarfur og einkum og sér í lagi tónlistarrásar sem koma má fyrir í dagskrá Rásar eitt.

kv.Guðrún María.


mbl.is Ekki kemur til uppsagna á Rás 1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

3195 millur á fjárlögum og engin frádráttur vegna egin tekna (auglýsinga) kemur þar til frádráttar né er nokkursstaðar minnst á í fjárlögum.

4200 millur er það sem kemur í kassann af "útvarps-gjaldinu". 

Hvert fara 1005 millur?

Hvert fara c.a. 600 millur (hagnaður auglýsinga)?

Hvernig getur svo fj**** stofnunin verið á hausnum?

Óskar Guðmundsson, 20.9.2012 kl. 10:19

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góð spurning Óskar.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.9.2012 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband