Hví standa sveitir lands auðar og ónotaðar hér á landi ?

Hvað veldur því að jörð eins og Grímsstaðir á Fjöllum er til sölu ?

Hefur einhver velt þvi upp í þessari umræðu um jarðakaup fjárfestis sem vill byggja upp ferðaþjónustu fyrir norðan ?

Það er búið að fækka og stækka býli í íslenskum landbúnaði með tilheyrandi samdrætti allra handa þar sem landgæði og nytjun lands hefur ekki verið tekin með í reikninginn.

Hluti bænda hefur snúið sér að ferðaþjónustu sem er víða meginstoð smærri samfélaga við hina breyttu búskaparhætti.

Á sama tíma er íslenskur landbúnaður í vörn, gagnvart aðilum sem vilja næstum leggja þann hinn sama landbúnað niður og flytja inn afurðir, eins sérkennilegt og það er.

Landnýtingarstefnumótun er eitthvað sem fer ekki mikið fyrir hjá okkur en ætti að liggja fyrir hjá hverju einu og einasta sveitarfélagi á landinu.

Enn sem komið er hefi ég einugis augum litið að slík stefnumótun sé farin í gang, frá einu sveitarfélagi Rangárþingi eystra, sem er vel og ber að fagna.

Ef til vill er slíkt að finna víðar en það atriði að hafa stefnumótun fyrir hendi af hálfu sveitarfélaga varðandi landnýtingu er eitthvað sem skýrir línur til muna varðandi til dæmis sölu lands undir ferðaþjónustu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Fagnar kínverskum fjárfestingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Stjórnin ætlar að troða okkur inn í Esb. meðan það er ekki útkljáð virkar þetta fyrir mér tortryggilegt. Ætla að nýta lifeyrissjóðina til að fjármagna hátæknisjúkrahús,sem er ekki hægt að manna. Nær væri að efla atvinnu í landinu,hér er alltof mikið af opinberum starfsmönnum í eftirlits og ráðgjafa störfum. Frænka mín er nýkomin frá Flateyri,þar eru útlendingar á atvinnuleysisbótum. Þeir verða auðvitað að lifa,hafa komið upphaflega til að vinna í fiski,sem er ekki að hafa lengur.Á Þingeyri leggja eigendur útgerðarfélags í Grindavík upp afla, vegna tryggðar við kauptúnið sem ól þá. Fyrirgefðu þetta er nú eins og fréttapistill,er búin aðvera of lengi að í kvöld,bíð því góða nótt.

Helga Kristjánsdóttir, 3.9.2011 kl. 02:11

2 Smámynd: Kristján H. Kristjánsson

Sammála Guðrúnu og Helgu.

Kristján H. Kristjánsson, 3.9.2011 kl. 08:10

3 identicon

Íslenskur landbúnaður er einfaldlega ekki samkeppnisfær við þann erlenda nema á fáeinum sviðum. Fjármagn neytenda, líkt og fjárfesta, leitar þangað þar sem hægt er að fá mikið fyrir lítið. Sem er eðli kapítalismans. Og er hið besta mál.

Baldur (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 19:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband