Vonandi verður hægt að brúa bilið.

Það er nokkuð ljóst að það atriði að samningar þessir skuli nú vera í uppnámi eftir að félagsmenn felldu samninginn, eru ekki góð tíðindi fyrir aðila í ferðaþjónustu hér á landi, ef félagið tekur til við fyrri aðferðir til þess að knýja á um betri samning.

Vonandi ná menn að semja sig niður á lausnir í því efni, þannig að náist að
brúa bilið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Næstu skref óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú talar um "fyrri aðfarir". Við skulum athuga það líka að flugmenn fóru ekki í verkfall. Ein krafna þeirra var að mönnun yrði rétt útreiknuð og menn fengju vinnu. Icelandair sögðu nægan mannskap til, en hvað svo. Um leið og flugmenn hættu að vinna YFIRVINNU stöðvaði það mörg flug. Þetta voru þá öll gæðin í útreikningum Icelandair. Fjölmiðlar snéru þessu gjarnan þannig að flug féllu niður vegna yfirvinnubanns flugmanna, en í raun féllu þau niður vegna undirmönnunar og slugsaháttar fyrirtækisins, ef flugmenn vilja eðlilega njóta sinna frídaga, og hljóta hafa fullan rétt á sínu stutta sumri án þess að hafa samviskubit. Hefði útreikningur á mannaþörf verið réttur hefði yfirvinnubann engin áhrif haft, eðli málsins samkvæmt.

Sigurður Konráðsson (IP-tala skráð) 12.7.2011 kl. 11:51

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Ég notaði nú orðið aðferðir, ekki aðfarir, en ekki er ég á nokkurn hátt að gera litið úr réttmætum kröfum flugmanna.

Þakka innlitið og upplýsingar um þetta mál.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.7.2011 kl. 23:39

3 identicon

Já afsakaðu, ég mislas þetta hjá þér :)

Kv,

SK

Sigurður Konráðsson (IP-tala skráð) 13.7.2011 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband