Matvöruverslanir EIGA að verðmerkja álegg og aðrar kjötvörur.

Nú fyrir skömmu var það bannað af Samkeppnisyfirvöldum mér best vitanlega að forverðmerkja matvöru, þ.e. að framleiðendur verðmerktu fyrir verslanir.

Og hvað þá, eigum við neytendur að horfa á vörur í verslunum án verðs á vörunni ?

Nei allsendis ekki, það er nefnilega verslanna að verðmerkja vöruna, þar sem hugsanlega mismunandi álagning millum verslana sem aftur skapar samkeppni er mér best vitanlega markmiðið með þessu banni.

Neytendur eiga ekki að þurfa að ganga um með vörur sem eru óverðmerktar til þess að skanna inn verð á viðkomandi vöru, vegna þess að það er verslanna að verðmerkja vöruna.

Vonandi þarf ekki kvartana og kæruferli til opinberra stofnanna til þess að færa mál þessi eins og þau eiga að vera.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Bull er þetta, það er alveg nóg að hafa millumiða, þú þart bara að fá þér gleraugu

Nema að þú sért tilbúinn að borga hærra verð,,,,,,,,,

Sigurður Helgason, 23.6.2011 kl. 02:51

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll.

Það er þín skoðun en ekki mín, lögum samkvæmt BER verslun að verðmerkja vörur og bera kostnað af slíku.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.6.2011 kl. 01:22

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Guðrún það er ekki mín skoðun, er búinn að vera setja upp verð í búðum, og allur kosnaður fer beint inn í verðið þetta eru ólög,,,,,,,,

samkeppnin er ekki milli verslana í sömu keðjuni,

samkeppni er milli framleiðanda á áleggi innan verslana,

og mér vitanlega er aðrar vörur svo sem kaffipakkar og hreinlætisvörur merktar með hillumiðum, svo áleggið fær hillumiða og það er nóg.

Þú kemur alltaf til með að borga aukinn kosnað,

Sigurður Helgason, 24.6.2011 kl. 07:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband