Loka þarf netmiðlum sem geta ekki fjallað um viðkvæm mál.

Ég las í dag bókstaflega fáránlegan rökstuðning ritstjóra eyjunnar.is fyrir myndbirtingu af vettvangi þar sem um var að ræða mannslát.

Sá hinn sami rökstuðningur er út í hött alfarið, sem flestir geta séð, þar sem sá hinn sami tekur að sér að flokka hugsanlega hópa sem teljast gætu tengst viðkomandi máli með birtingu meiri upplýsinga í samræmi við það.

Sjálf hefi ég fyrir nú átján árum síðan lent í því að mega þurfa að fá tilkynningu um lát nákomins aðila úr fjölmiðlum, í því tilviki eiginmanns míns.

Á þeim tíma var hin " meinta " samkeppni fréttamiðla í frásögnum hafin, og meðal annars það atriði sem ég fékk að vita um er ég ræddi símleiðis við einn fréttamann skömmu eftir frásögn á annarri sjónvarpsstöðinni hér á landi, þar sem ég spurði þann mann um það hvort hann gæti sagt mér hvor íbúi eins húss, hefði látist en um tvo var að ræða í því tilviki.

Áður var ég búin að hafa samband við lögreglu sem og sjúkrahús á öllu höfuðborgarsvæði sem ekkert gátu upplýst um málið mér, og öðrum nákomnum til handa, í tvo klukkutíma, fyrr en kvöldfréttir beggja sjónvarpsstöðva birtu upplýsingar þess eðlis að einn maður væri látinn í ákveðnu húsi, fyrrum heimili mínu.

Önnur sjónvarpsstöðin birti myndir af hinum látna á börum þar sem ég gat þekkt manninn minn.

Það er óhugguleg reynsla sem situr lengi meðferðis með manni og ég vil ekki að nokkur maður megi þurfa að upplifa eithvað álíka.

Það er nefnilega hægt að fyrirbyggja að slík fréttamennska sé á ferð á þann veg að nánustu aðstandendur geti mögulega verið að greina mannslát er tengist þeim hinum sömu úr fjölmiðlum.

Hér er um að ræða spurningu um vönduð vinnubrögð í samræmi við 3.grein siðareglna Blaðamannnafélagsins sem þarf án efa að fræða um enn frekar.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er afar sorglegt dæmi sem þú rekur hér, kæra Guðrún María, og hrikalegt raunar, að þessi háttur hafi verið viðhafður og sé það jafnvel ennþá. Þú átt alla samúð mína og skilning í þessum málum.

Jón Valur Jensson, 15.5.2011 kl. 04:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hræðilegt að heyra þetta Gmaría mín.  Og ég er innilega sammála þér með að aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2011 kl. 14:07

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir innlitið Jón Valur og Cesil.

Öll reynsla er lærdómur til handa hverjum og einum en aðhald þarf að vera til staðar í þessu efni og í ljósi þess dreg ég þetta fram núna.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.5.2011 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband