Mistök ráðherra, að láta hafa eitthvað eftir sér um dómsmál í gangi.

Í fyrsta lagi skyldi forsætisráherra aldrei, frekar en þingmenn, ræða dómsmál í gangi, alveg sama hvaða mál það er.

Í öðru lagi, er yfirlýsing þessi álíka því að þar fari ekki forsætisráðherra landsins sem situr við stjórnvölinn, heldur frekar óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu.

Sjálfsagt er Jóhanna orðin dauðþreytt á landsstjórninni og því argaþrasi sem starf forsætisráðherra inniheldur, en það er eins gott að aðgæta hvað er látið frá sér fara á fésbókinni.

kv.Guðrún María.


mbl.is Réttarhöldin yfir níumenningunum dapurleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Það sem gerir mig arga út í Jóhönnu og unni henni varla neins,þótt ég vilji gæta réttlætis, er umsókn í Esb. vitandi að það er hrein aðlögun og það hlýtur hún að hafa vitað. Icesave,á hún að vita er ólögvarin krafa.

Helga Kristjánsdóttir, 19.1.2011 kl. 05:48

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Helga.

Já því miður er einstefna Samfylkingar í þessu efni það sem þjóðinni var boðið upp á. Það átti að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort sækja ætti um.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.1.2011 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband