Á að leyfa gönguferðir að gosstöðvum á þessu svæði ?

Það hlýtur að fara að verða áleitin spurning hvort yfir höfuð að gefa leyfi til þess að fólk sé á gönguferðum að gosstöðvum með þessa staðsetningu.

Auðvitað geta óhöpp alltaf orðið hvarvetna, en þrjú þyrluútköll vegna óhappa í gönguferðum á gosstöðvar á einum degi, er full mikið að mér finnst.

Eldgos þetta er í óbyggðum og sannarlega nægilegur fréttaflutningur sem við fáum af þróun mála ásamt því að geta skoðað gosið í beinni á vefmyndavélum.

En það nægir ekki öllum, því fer sem fer.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Slasað fólk sótt í Þórsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Teitur Haraldsson

Eigum við nokkuð að banna þúsundum manna að ferðast og hafa gaman af vegna vandræða á þrem manneskjum?

Er ekki komið nóg af að meirihlutinn líði fyrir minnihlutann. 

Teitur Haraldsson, 3.4.2010 kl. 02:49

2 identicon

Vil bara benda á það að gosið er á fjölfarinni gönguleið, eina sem er er það að fjöldi þeirra sem fara þarna um hefur margfaldast frá því fyrir gos.

Hvað hafa björgunnarsveitir oft verið kallaðar úti vegna þess að fólk er slasað á fimmvörðuhálsi?? efast um það að hlutfallið sé hærra nú en áður!!!

Eigum við ekki bara að loka fimmvörðuhálsi til frambúðar, banna fólki að ganga á Esjuna já og bara alstaðar þar sem ekki er búið að malbika fyrir okkur göngustíga? Nei bíddu fólk getur líka dottið þar bönnum bara allar göngur hvort sem það er útí sjoppu eða frá Rvk til Ak yfir Kjöl...

Og já maðurinn sem ökklabrotnaði er bróðir minn nokkuð vanur göngum hann einfaldlega missteig sig illa og ökklinn small í sundur.

Stefán F B Nielsen (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 03:58

3 Smámynd: Pétur Ásbjörnsson

Er sammála síðasta manni. Maðurinn var vel búinn og mér tókst að fljúga á hausinn á samastað en lenti sem betur fer vel.  Það verður að athugast að það voru í kring um 600 til 1000 manns þarna og alltaf má búast við óhöppum á svona stöðum.

Pétur Ásbjörnsson, 3.4.2010 kl. 04:22

4 Smámynd: Pétur Ásbjörnsson

Ég vil jafnframt benda þessari góðri konu að björgunarmenn, sem voru þó nokkuð margir, aðstoðuðu með glöðu geði og fá ekki krónu fyrir annað en ánægju að hafa hjálpað.

Pétur Ásbjörnsson, 3.4.2010 kl. 04:27

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er þetta eitthvað öðruvísi en ef þetta væri hver önnur útihátið um verslunarmannahelgi? Ég held ekki, miðað við mannfjöldann er ekkert óeðlilegt þó einhver skakkaföll verði, aðlatriði er að fólk hafi vit fyrir sér og fari varlega.

Guðmundur Ásgeirsson, 3.4.2010 kl. 07:25

6 identicon

Björgunarsveitarfólk á mikinn heiður skilinn, þetta eru miklar hetjur!

Elín Gísladóttir (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 10:02

7 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Ég tók þátt í píslargöngu í gær.

Mér fannst vel af sér vikið að ekki skyldu verða meiri slys á fólki, rétt eins og í einum knattspyrnuleik. Gæsla var góð hjá björgunarsveitamönnum og lögreglu. Vakti það öryggistilfinningu göngumanna.

Það má ekki ræna fólki þessari upplifun með lokunum. Því má ekki loka svæðum. Þetta er hluti af því að vera Íslendingur, að fá að upplifa jarðelda í stórbrotinni náttúru.

Sigurpáll Ingibergsson, 3.4.2010 kl. 11:09

8 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Furðulegt hvað fólk er duglegt við að heimta bönn. Ég tek undir með Sigurpáli, ef þessi fjöldi fólks hefði verið í fótbolta, jafnvel innandyra, þá hefðu líkast til orðið mun fleiri slys.

Nettó viðbótarkostnaður vegna björgunaraðgerða er líklega enginn þar sem bæði gæslan og björgunarsveitir myndu annars fara í æfingar ef ekki væru raunveruleg útköll.

Sigurður Ingi Jónsson, 3.4.2010 kl. 11:48

9 identicon

Afhverju eru björgunarsveitamenn hetjur? Þessu fólki eru voðalega mikið hampað fyrir að stunda áhugamálin sín: Útivist.

Hetjur?

Varla.

Hjálparhellur væri rétta orðið. Eiga að sjálfsögðu allt gott skilið.

Gylfi (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 14:50

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Björgunarsveitir eru í fullu starfi á svæðinu öllu vegna staðsetningar, ásamt almannavörnum og lögreglu.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.4.2010 kl. 02:24

11 identicon

björgunarsveitir eru ekki í fullu starfi á svæðinu öllu o.s.frv.

Það fara einungis í þessi útköll þeir liðsmenn sem vilja/nenna/hafa tíma.

Þetta eru einu aðilarnir sem eru ekki skyldugir til að gera eitt eða neitt. Löggan og almannavarnir hafa þetta hinsvegar sem aðalstarf og þurfa að gera svo vel að mæta.

Ekki björgunarsveitir.

En margir þeirra fara af því þeim finnst þetta bras áhugavert og skemmtilegt.

Gylfi (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband