ÉG mótmæli skattahækkunum núverandi ríkisstjórnarflokka í landinu.

Ég sakna þess að sjá fulltrúa okkar launþega mótmæla skattahækkunum núverandi ríkisstjórnar en auðvitað mátti það vitað verða að formannaflóra verkalýðshreyfingarinnar tilheyrir meira og minna vinstri flokkunum, sem aftur gerir það að verkum að hinn aldagamli undirlægjuháttur tekur völdin þegar standa þarf vörð um hagsmuni flokkanna ellegar eiginhagsmunapot í valdastöður gegnum pólítik.

Það er EKKERT sjálfsagt við það að leggja þær byrðar á hinn almenna launamann að minnka kaupmátt þess hins sama svo og svo mikið meðan ríkið sjálft er ekki þess umkomið að skera niður svo nokkru nemi.

Ekkert.

Þeir sem taka að sér formennsku í verkalýðsfélögum launamanna eiga ekki að gefa upp hvar þeir standa í pólítik, né heldur að vera sýnilega starfandi í stjórnmálaflokkum við stjórn ríkis eða sveitarfélaga, hvað þá að sitja þar beggja vegna borðs eins og gerst hefur.

Aldrei.

Hvar er ASÍ, hvað ætla þau hin sömu samtök að gera varðandi hagsmunavörslu til handa launþegum í landinu ? Á það að vera nóg að senda yfirlýsingar í fjölmiðla ? Hvað varð af raunverulegum aðgerðum ?

Hvar er BSRB og önnur félög launamanna í landinu ? Ætla menn að láta skattahækkanir og skertan kaupmátt launa yfir sig ganga eins og ekkert sé ?

Spyr sú sem ekki veit.

kv.Guðrún María.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Þvjí miður eru bæði ASÍ og BSRB aðilar að Ríkisstjórnarflokkunum og í hugsjónavímu yfir vinstri leiðinni til helvítis. Ótrúlegt að aðrir Íslendingar skuli neyðast til að greiða í samtök sem vinna gegn hagsmunum þeirra!

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 11.2.2010 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband