Hagsmunatogstreitan og ráðleysið um breytingar í sjávarútvegi.

Á sínum tíma hefði verið hægt að fyrna aflaheimildir þ.e. fyrir aldamótin síðustu, en eftir þróun mála varð hvert ár fjötur um fót við slikar breytingar, og aðrar lausnir hafa þurft að koma til sögu.

Það breytir því ekki að þær hinar sömu lausnir eru auðvitað til og andvaraleysi við slíkt er og hefur verið algjört þar sem menn standa eins og steingervingar í hagsmunavörslu hér og þar í sínum básum líkt og engin þróun megi eiga sér stað.

Oftar en ekki hafa þeir sem gala og gapa hæst um breytingar enga heildaryfirsýn varðandi alla lausa enda sem þarf að hnýta í þessu efni, en umbreytingaleysið er hins vegar ófyrirgefanlegt í ljósi annmarkanna.

kv.Guðrún María.


mbl.is Segir fyrningarleið ruddaskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Of litlar aflaheimildir er mesta vandamálið og það stafar af reiknimeisturum hafró enda er ekki glóra í því að setja svona mikla ábirgð á herðar opinberstarfsmanns og það er ekki langt síðan þeir viðurkenndu reiknisskekkju sem varð til þess að það tíndust margir þorskar í sjónum.

Magnús (IP-tala skráð) 16.10.2009 kl. 01:20

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er alveg rétt að reiknikúnstir Hafrannsóknarstofnunnar eru sérkapítuli af heildarvandamáli þessu, en þar vantar stjórnmálamenn bein í nef til þess að andmæla.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.10.2009 kl. 01:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband