Fyrsta óþarfa ferðalagið erlendis vegna Esb málsins.

Ferð utanríkisráðherra til Svíþjóðar kostar væntanlega fjármuni, og það sýndarmennskutilstand er eitthvað sem ráðherran hljóp eftir eins og skot, og ferðirnar verða örugglega fleiri varðandi þetta mál, áður en til þess kemur að þjóðin segi NEI, við aðild að Esb, þegar það kemur í ljós að undanþágur þær sem menn héldu að " væru í boði " eru ekki í boði.

kv.Guðrún María.


mbl.is Umsókn Íslands um ESB bíður afgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væri nú ekki gáfulegra að sjá aðildarsamninginn áður þú kastar fram þessum fullyrðingum   og varla getur ein kona með búsetu í  Hafnarfirði, þrátt fyrir að vera "Rangæingur fram í fingurgóma", sagt NEI fyrir alla þjóðina. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 02:03

2 identicon

Þú talar bara fyrir sjálfa þig. Þú getur ekki fullyrt neitt eða slegið fram svona málflutningi fyrir aðra.

Ína (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 02:14

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Páll og Ína.

Jú það get ég vegna þess ég VEIT að við MUNUM afsala okkur mest öllu fullveldi og sjálfstæði einnar þjóðar sem hefur haft mikið fyrir að halda því og ég VEIT það einnig að undanþágur fáum við EKKI.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.7.2009 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband