Erum við þess umkomin að endurskoða gildismat í einu samfélagi ?

Okkur Íslendingum hefur að hluta til verið talin trú um það að peningar vaxi á trjánum, þar sem endalausar ævintýrasögur af auðsöfnun örfárra hafa verið frásagnir fjölmiðlanna undanfarin ár.

Það átti að stofna fjármálamiðstöð á Ísland að mig minnir, sem yrði öðrum þjóðum fordæmi, kanski með kúlúlánastarfssemi, hver veit ...

En eins snöggt og hið málamyndaríkidæmi heimsótti þjóðina, hvarf það á einni nóttu, og spilaborg hrundi til grunna, þar sem sandur virtist  hafa verið byggingarefnið.

Á sandi byggði heimskur maður hús,.... syngja leikskólabörnin og auðvitað er það rétt, en spurningin er sú, hvort við munum þess umkomin að endurskoða gildismat okkar eftir hrun ofan af stalli ?

Fyrir ári síðan var ég á ferð í Svíþjóð og þar í landi sá ég ekki jeppa á ferð á akvegum svo nokkru næmi þar sem ég var stödd, en all mörg ár hefi ég velt fyrir mér hinni ótrúlegu þróun sem hér á landi hefur verið til staðar varðandi ökutækjaóhóf okkar Íslendinga.

Ef til vill ekki furða því tollar gerðu það víst að verkum að hagkvæmt var að kaupa bensíneyðsluháka sem auðvitað voru útbúnir nagladekkjum yfir vetrartímann án sérskattlagningar þar að lútandi innanbæjar.

Þar er aðeins eitt dæmi um hvað við kunnum að þurfa að endurskoða en þau eru örugglega fleiri.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband